Fréttir

9.7.2015 : Nýtt rótarýár hafið

Nýtt starfsár hófst hjá Rótarýhreyfingunni 1. júlí sl. Þá tók Magnús B. Jónsson, rótarýfélagi í Rkl. Borgarness, við sem umdæmisstjóri af Guðbjörgu Alfreðsdóttur, rótarýfélaga í Rkl. Görðum í Garðabæ. Ný stjórn tekur jafnframt við í Rótarýklúbb Eyjafjarðar. Ágúst Þór Árnason verður forseti, Eiður Guðmundsson verður ritari, og Helgi Vilberg er áfram gjaldkeri næsta starfsár. Lesa meira

27.3.2014 : Nýr fundarstaður hjá Rótarýklúbbi Eyjafjarðar

Rótarýklúbbur Eyjafjarðar hefur nú skipt um fundarstað. Eftir 22 ár á Hótel KEA hefur klúbburinn hætt að funda á Hótel KEA í kjölfar breytinga þar sem fundarherbergi klúbbins, Múlaberg, var aflagt og innréttingum breytt. Klúbburinn fundar nú á veitingastaðnum Bryggjunni, Strandgötu 49, á Akureyri. Fundartíminn er hinn sami, þriðjudagar kl. 18:15.

Lesa meira

12.9.2013 : Stefnir í spennandi umdæmisþing

Selfoss kirkjan og áin

Nú hafa 98 skráð sig á umdæmisþingið sem haldið verður á Selfossi 11.-12. október og 127 manns hafa skráð sig á lokahófið. Stefnir í mjög líflegt og spennandi þing. Áttir þú eftir að skrá þig?

Lesa meira

8.3.2013 : Námskeið í félagaþróun!

6. apríl á Grand Hotel kl. 10-15. Fyrirlesari er Per Hylander

Per Hylander

Námskeið í félagaþrórun, „Workshop on Development of Clubs - tailor made for the individual club“, er yfirskriftin á námskeiði fyrir félaga úr rótarýklúbbum sem bera ábyrgð á félagaþróun. Hvað þarf til að gera starf í rótarýklúbbi áhugavert fyrir nýja félaga? Námskeiðið er á Grand Hotel kl. 10-15, laugardaginn 6. apríl.

Lesa meira

7.7.2011 : Sumarleyfi í Rótarýklúbbi Eyjafjarðar

Fundir falla niður í Rótarýklúbbi Eyjafjarðar vegna sumarleyfa í júlí og fyrstu viku ágústmánaðar. Fyrsti fundur að loknu sumarleyfi verður þriðjudaginn 9. ágúst nk. kl. 18:15.

Lesa meira

2.7.2011 : Nýtt rótarýár hafið

Nýtt starfsár hófst hjá Rótarýhreyfingunni 1. júlí sl. Þá tók Tryggvi Pálsson, rótarýfélagi í Rkl. Reykjavík-Austurbæ, við sem umdæmisstjóri af Margréti Friðriksdóttur, rótarýfélaga í Rkl. Borgum í Kópavogi. Sama stjórn situr áfram í Rótarýklúbb Eyjafjarðar næsta starfsár.

Lesa meira