Fréttir

13.10.2010

Heimsókn umdæmisstjóra

Á næsta fundi Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, þriðjudaginn 19. október nk, mun Margrét Friðriksdóttir, umdæmisstjóri, verða gestur okkar. Samkvæmt hefð er mökum boðið að sitja fundinn.

Margrét Friðriksdóttir, umdæmisstjóri, var stofnfélagi í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi, 13. apríl 2000 og var forseti klúbbsins starfsárið 2003-2004.

Margrét er með MA-próf frá Háskóla Íslands í uppeldis- og menntunarfræðum og  BA-próf í íslensku og uppeldisfræði frá sama skóla.

Margrét var skipuð skólameistari við Menntaskólann í Kópavogi árið 1993 en starfaði í MK við kennslu frá árinu 1982. Hún var sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu menntunar og fræðslu árið 2007.

Margrét er gift Eyvindi Albertssyni löggiltum endurskoðanda og partner hjá KPMG. Eyvindur var stofnfélagi í Rótarýklúbbi Mosfellssveitar árið 1981 og er nú félagi í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi. Margrét og Eyvindur eru búsett í Kópavogi og eiga einn son og fjögur barnabörn.



SFS