Fréttir

5.7.2010

Nýtt rótarýár hafið

Nýtt starfsár hófst hjá Rótarýhreyfingunni 1. júlí sl. Þá tók Margrét Friðriksdóttir, rótarýfélagi í Borgum í Kópavogi, við sem umdæmisstjóri af Sveini H. Skúlasyni.

Nýtt starfsár hófst hjá Rótarýhreyfingunni 1. júlí sl. og tóku jafnframt við nýjar stjórnir í öllum klúbbum. Margrét Friðriksdóttir, rótarýfélagi í Borgum í Kópavogi, tók þá við sem umdæmisstjóri af Sveini H. Skúlasyni, rótarýfélaga í Rvk-Breiðholt.

Rótarýklúbbur Eyjafjarðar vill þakka Sveini fyrir gott samstarf á liðnu starfsári. Sveinn og eiginkona hans, Sólveig Erlendsdóttir, hófu fundaferð sína um rótarýklúbbana hjá okkur í klúbbnum 1. september sl. Það var okkur mikill heiður.

Við óskum Margréti Friðriksdóttur allra heilla í störfum sínum sem umdæmisstjóri.


SFS