Fréttir

5.11.2008

Fréttir af Rótarýklúbbi Eyjafjarðar

Rótarýklúbbur Eyjafjarðar átti forsíðufréttina í dag, 5. nóvember, á rotary.is. Þar er farið yfir starfið í klúbbnum það sem af er starfsárinu 2008-2009 og stjórnin kynnir klúbbinn fyrir öðrum rótarýfélögum.

Rótarýklúbbur Eyjafjarðar kom saman að loknu sumarleyfi 12. ágúst sl. Fundir okkar eru haldnir á Hótel KEA alla þriðjudaga kl. 18:15 og standa jafnan til kl. 19:30. Í stjórn klúbbsins sitja Helgi Vilberg, forseti, Stefán Friðrik Stefánsson, ritari, og Eiður Guðmundsson, gjaldkeri.

Mörg fróðleg erindi hafa verið haldin á starfsárinu í klúbbnum og til okkar komið góðir gestir. Fluttir hafa verið fyrirlestrar um t.d. forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, stöðu efnahagsmála á örlagatímum þjóðarinnar, ljósmyndun sem listgrein og Afríkuferð til Asmara í Eritreu.

Meðal gesta okkar það sem af er starfsárinu eru Ólöf Nordal, alþingismaður, Kristín Aðalsteinsdóttir, prófessor, Jakob Möller, fyrrum yfirmaður kærudeildar Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf og Lára Stefánsdóttir, varaþingmaður og fjarnemandi í ljósmyndun við Academy of Art University í San Fransisco.

6. september sl. bauð Helgi Vilberg, forseti klúbbsins og skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri, klúbbfélögum til sín í skólann - hann var settur í þeirri viku eftir endurinnréttingu í kjölfar eldsvoða síðla júnímánaðar. Buðu Helgi og Soffía Sævarsdóttir, eiginkona hans, upp á máltíð að lokinni skoðunarferð um skólann, þar sem Helgi fræddi okkur um starf skólans fyrr og nú.

Ellen Ingvadóttir, umdæmisstjóri, mun koma í heimsókn til okkar síðla nóvembermánaðar og við munum hafa jólafund 16. desember nk. Hefð er fyrir því að mökum sé boðið á jólafundi.

Starfið í klúbbnum er því fjölbreytt á þessu starfsári og fundirnir verið skemmtilegir og fjölbreyttar umræður yfir borðhaldinu. Við höfum ennfremur virkjað heimasíðu félagsins á vef Rótarý og stefnum að því að nota hana mjög vel til að kynna starf klúbbsins.

með rótarýkveðju,
Stefán Friðrik Stefánsson, ritari Rótarýklúbbs Eyjafjarða