Rótarýklúbbur Eyjafjarðar hefur nú skipt um fundarstað. Eftir 22 ár á Hótel KEA hefur klúbburinn hætt að funda á Hótel KEA í kjölfar breytinga þar sem fundarherbergi klúbbins, Múlaberg, var aflagt og innréttingum breytt. Klúbburinn fundar nú á veitingastaðnum Bryggjunni, Strandgötu 49, á Akureyri. Fundartíminn er hinn sami, þriðjudagar kl. 18:15.
Lesa meiraNú hafa 98 skráð sig á umdæmisþingið sem haldið verður á Selfossi 11.-12. október og 127 manns hafa skráð sig á lokahófið. Stefnir í mjög líflegt og spennandi þing. Áttir þú eftir að skrá þig?
Lesa meiraNámskeið í félagaþrórun, „Workshop on Development of Clubs - tailor made for the individual club“, er yfirskriftin á námskeiði fyrir félaga úr rótarýklúbbum sem bera ábyrgð á félagaþróun. Hvað þarf til að gera starf í rótarýklúbbi áhugavert fyrir nýja félaga? Námskeiðið er á Grand Hotel kl. 10-15, laugardaginn 6. apríl.
Lesa meiraFundir falla niður í Rótarýklúbbi Eyjafjarðar vegna sumarleyfa í júlí og fyrstu viku ágústmánaðar. Fyrsti fundur að loknu sumarleyfi verður þriðjudaginn 9. ágúst nk. kl. 18:15.
Nýtt starfsár hófst hjá Rótarýhreyfingunni 1. júlí sl. Þá tók Tryggvi Pálsson, rótarýfélagi í Rkl. Reykjavík-Austurbæ, við sem umdæmisstjóri af Margréti Friðriksdóttur, rótarýfélaga í Rkl. Borgum í Kópavogi. Sama stjórn situr áfram í Rótarýklúbb Eyjafjarðar næsta starfsár.