Tónlistarsjóðurinn

Tónlistarsjóður Rótarý

Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi. Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Styrkurinn verður veittur í janúar  og verður að upphæð kr. 800.000. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, fyrir 8. október. Netfang: rotary@rotary.is

Fyrst var úthlutað úr sjóðnum á 100 ára afmæli Rótarýhreyfingarinnar

Dagskrá vegna 100 ára afmælis Rótarýhreyfingarinnar hófst hér á landi með tónleikum í Salnum í Kópavogi þann 7. janúar 2005. Við það tækifæri var í fyrsta skipti veitt viðurkenning úr nýjum Tónlistarsjóði íslensku Rótarýhreyfingarinnar.

Átján umsóknir voru þá um styrk úr tónlistarsjóðinum. Það var eindóma álit dómnefndar að Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, hlyti fyrstu viðurkenninguna að upphæð 500 þúsund kr. til frekara náms.

Styrkirnir eru veittir til þeirra  sem hyggjast gera tónlist að framtíðarstarfi sínu.
Æskilegt er að umsækjendur séu komnir í mastersnám.
Allar upplýsingar um menntun og áfanga í tónlistarnámi þurfa að koma fram
Mjög gott er að láta tengil á nýjar upptökur af leik / söng fylgja.

Tónlistarsjóður

Árlega er veitt úr tónlistarsjóði Rótarý á Íslandi.  

Úthlutanir frá upphafi:

  • 2017: Ísak Ríkharðsson fiðluleikari og Jóhann Kristinsson baritón. - Sjá frétt
  • 2016: Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóluleikari, og Sigrún Björk Sævarsdóttir, sópransöngkona - Sjá frétt
  • 2015: Baldvin Oddsson trompetleikari og Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari. - Sjá frétt
  • 2014: Lára Bryndís Eggertsdóttir orgelleikari - Sjá frétt
  • 2013: Fjölnir Ólafsson, barítónsöngvari, og Matthías Ingiberg Sigurðsson, klarínettuleikari og tónsmiður. - Sjá frétt
  • 2012: Andri Björn Róbertsson bassabarítónsöngvari og Hulda Jónsdóttir fiðluleikari. - Sjá frétt
  • 2011: Sólveig Thoroddsen Jónsdóttir hörpuleikari. - Sjá frétt
  • 2010: Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Jóhann Már Nardeau trompetleikari. - Sjá frétt
  • 2009: Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari. - Sjá frétt
  • 2008: Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari. Sjá frétt
  • 2007: Bragi Bergþórsson tenór - Sjá frétt
  • 2006: Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari
  • 2005: Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari.



Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning