71. umdæmisþing Rótarý í Kópavogi 2016
14.-15. október
71. umdæmisþing Rótarý á Íslandi verður haldið í Kópavogi dagana 14. og 15. október 2016.
Það er okkur félögunum í Rótarýklúbbi Kópavogs sönn ánægja að bjóða ykkur ásamt mökum innilega velkomin á þingið og við vonum að þið eigið ánægjulega heimsókn í Kópavog þessa haustdaga.
Dagskrá þingsins verður sambland af fróðleik og skemmtun ásamt hefðbundnum þingstörfum og er það von okkar að þinggestir njóti vel samverunnar. Sjá dagskrána hér
Gert er ráð fyrir að forsetar, ritarar og gjaldkerar allra Rótarýklúbba landsins mæti og verða sérstakir fræðslufundir fyrir þessa embættismenn klúbbanna á laugardeginum.
Eins og fram kemur í dagskrá þingsins hefst móttaka Þinggesta og skráning kl. 13:00 föstudaginn 14. október í Digraneskirkju og þingsetning verður svo þar kl. 14:00.
Opnað hefur verið fyrir vefskráningu og eru rótarýfélagar hvattir til að skrá sig ásamt mökum sínum sem fyrst.
Skráið ykkur hér
Takmarkaður fjöldi herbergja hefur verið tekinn frá á Grand Hótel Reykjavík á sérstöku verði og gilda þau verð til 27. september. Eftir það gilda almenn verð. Sjá nánar hér.
Sendum ykkur öllum bestu rótarýkveðjur og vonumst til að sjá ykkur sem flest í Kópavogi í október.
Guðmundur Ólafsson, formaður undirbúningsnefndar
Sigfinnur Þorleifsson, forseti Rótarýklúbbs Kópavogs