Umdæmisþing 2015

70. umdæmisþing Rótarý á Íslandi

MENNTUN – SAGA – MENNING
Borgarnesi 9. - 10. október 2015

70. umdæmisþing Rótarý á Íslandi verður haldið í Hótel  Borgarnesi  dagana 9. og 10. október 2015.

Það er okkur félögunum í Rótarýklúbbi Borgarness sönn ánægja að bjóða ykkur og og maka ykkar innilega velkomin á þingið og vonum að þið megið eiga ánægulega heimsókn í Borgarnes þessa haustdaga. Dagskrá þingsins verður sambland af fróðleik og skemmtun ásamt hefðbundnum þingstörfum og er það von okkar að þinggestir njóti vel samverunnar. Sjá dagskrána hér

Gert er ráð fyrir að forsetar, ritarar og gjaldkerar allra Rótarýklúbba landsins mæti og verða sérstakir  fræðslufundir fyrir þessa embættismenn klúbbanna á föstudeginum.

Eins og fram kemur í dagskrá þingsins hefst móttaka Þinggesta og skráning  kl. 11:30 föstudaginn 9. október í Hótel Borgarnesi og þingsetning verður  svo kl. 13:45 í Borgarneskirkju. 

Opnað hefur verið fyrir vefskráningu og eru rótarýfélagar hvattir til að skrá sig ásamt mökum sínum sem fyrst. Skráið ykkur hér 

Gisting verður í Hótel Borgarnesi og þurfa félagar að bóka hana sjálfir.  Sjá nánar á www.hotelborgarnes.is

Sendum ykkur öllum bestu rótarýkveðjur og vonumst til að sjá ykkur sem flest í Borgarnesi  í október.

   Þórir Páll Guðjónsson, formaður undirbúningsnefndar.
   Birna Guðrún Konráðsdóttir, forseti Rótarýklúbbs Borgarness


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning