Fréttir

12.9.2013 : Stefnir í spennandi umdæmisþing

Selfoss kirkjan og áin

Nú hafa 98 skráð sig á umdæmisþingið sem haldið verður á Selfossi 11.-12. október og 127 manns hafa skráð sig á lokahófið. Stefnir í mjög líflegt og spennandi þing. Áttir þú eftir að skrá þig?

Lesa meira

8.3.2013 : Námskeið í félagaþróun!

6. apríl á Grand Hotel kl. 10-15. Fyrirlesari er Per Hylander

Per Hylander

Námskeið í félagaþrórun, „Workshop on Development of Clubs - tailor made for the individual club“, er yfirskriftin á námskeiði fyrir félaga úr rótarýklúbbum sem bera ábyrgð á félagaþróun. Hvað þarf til að gera starf í rótarýklúbbi áhugavert fyrir nýja félaga? Námskeiðið er á Grand Hotel kl. 10-15, laugardaginn 6. apríl.

Lesa meira

20.10.2012 : Rótarýklúbbur Ísafjarðar 75 ára

Rótarýklúbbur Ísafjarðar með mökum

Rótarýklúbbur Ísafjarðar fagnar 75 ára afmæli laugardaginn 20. október. Það var sumarið 1937 sem umdæmisstjóri dönsku Rótarýklúbbanna, E. Ipsen, var á ferð hér á landi til að heimsækja Rótarýklúbb Reykjavíkur, sem þá var eini klúbbur landsins. Reykjavíkurklúbburinn hafði starfað í þrjú ár og var Ipsen að undirbúa stofnun fleiri klúbba hér á landi. Eftir heimsókn til Reykjavíku lá leið hans til Ísafjarðar þar sem hann átti fund með heimamönnum og var meðal annarra gesta, Árni Friðriksson fiskifræðingur. Ísfirðingar þurftu ekki mikla hvatningu við þar sem Rótarýklúbbur Ísafjarðar var stofnaðu 20. október 1937 á heimili Jónasar Tómassonar bóksala og konu hans Önnu Ingvarsdóttur. Voru fundir næstu tvö árin haldin á heimili þeirra hjóna eða í sumarbústað þeirra í Tunguskógi.

Lesa meira

17.7.2012 : Nýr umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi

Kristján Haraldsson tekur við sem umdæmisstjóri

Gestir á fundi Rótarýklúbbs Ísafjarðar

Félagar í Rótarýklúbbi Ísafjarðar héldu síðasta fund starfsársins fimmtudaginn 5. júlí í Skíðaskálanum í Tungudal. Mikið stóð til þar sem félagi í klúbbnum, Kristján Haraldsson tók við stöðu umdæmisstjóra Rótarý á Íslandi af Tryggva Pálssyni. Kristján er þriðji meðlimur klúbbsins frá upphafi sem gengt hefur stöðu umdæmisstjóra hreyfingarinnar.

Lesa meira

17.7.2012 : Sumarfrí Rótarýklúbbs Ísafjarðar

Næsti fundur Rótarýklúbbs Ísafjarðar verður 23. ágúst kl 07:00 í Vestrahúsinu, 2 hæð

Sumar á Ísafirði

19.6.2012 : Rótarýklúbbur Ísafjarðar Örnefnaskilti

Örnefnaskilti yfirfarin

Klúka lagfærð

Rótarýklúbbur Ísafjarðar stóð fyrir örnefnamerkingum á síðustu öld við þjóðveginn frá Súðavík, gegnum Ísafjörð og út á Óshlíðarveg. Alls voru 25 skilti með örnefnum komið fyrir og þrátt fyrir að klúbburinn hafi áður yfirfarið þau var komið að allsherjar lagfæringu á skiltunum. Bæði hafa veður og vindar unnið þeim ógagn og eins hefur vegstæði breyst töluvert á mörgum stöðum og skiltin því komin langt frá þjóðveginum. Það var því ákveðið að halda í vinnuferð fimmtudaginn 14. júní, sækja öll skiltin, yfirfara þau og koma þeim fyrir á nýjan leik við vegkantinn.

Lesa meira