Þjóðmálaþjónustunefnd
Þjóðmálaþjónusta merkir í raun það sem rótarýfélagi leggur af mörkum fyrir samfélagið annað hvort sem einstaklingur eða í samvinnu við aðra. Vel mætti því kalla þennan þátt samfélagsþjónustu. Þjóðmálanefnd hefur í raun með höndum þann þátt rótarýstarfs sem snýr að samfélaginu, einstaklingum og heild. Ýmsar undirnefndir má kjósa á vegum eða á vettvangi þjóðmálanefndar og ber þar fyrst aðnefna æskulýðsnefnd. Rótarýhreyfingin hefur alla tíð gert sér far um að vinna heilt að málefnum æskufólks, annað tveggja á eigin vegum eða í samvinnu við aðra. Má þar nefna námsstyrki og skipti á nemum, ráðgjöf um tómstundayðju, starfsval og holl viðfangsefni.
Sama má raunar segja um þjónustu og aðstoð við aldraðra. Á margan hátt hafa rótarýklúbbar sinnt gömlu fólki, boðið á samkomur, efnt til ferðalaga og rétt þurfandi fólki hjálparhönd í einstökum tilfellum. Þess eru einnig mörg dæmi að rótarýklúbbar veiti sjúkum eða vanheilum einstaklingum aðstoð þótt þeir standi ekki fyrir almennum fjársöfnunum í því skyni.
Með því er eindregið mælt að rótarýklúbbur hafi árlega með höndum verkefni sem til heilla og menningarauka horfir fyrir samfélagið. Á þann hátt sannar hann þann tilgang rótarýs að þjóna samfélaginu og efla aðra til góðra verka.
Íslenskir klúbbar hafa á margan hátt rækt samfélagsþónustu á menningar- og mannræktarsviði. Umhverfisvernd er að sama skapi ríkur þáttur í samfélagsþjónustu rótarýklúbba viða um land.