Útsýnisskífa á Ásfjalli

Útsýnisskífa reist á Ásfjalli

Útsýnisskífan á Ásfjalli átti sér langa sögu eins og segir í 50 ára afmælisriti klúbbsins. Þegar hún var komin á sinn stað og vígsluathöfn hafði farið fram 26.júní 1987 voru fimmtán ár liðin frá því að fyrst var rætt um það í klúbbnum að hann ætti að beita sér fyrir því að koma upp útsýnisskífu á Ásfjalli. Málinu var hreyft öðru hvoru en úr framkvæmdum varð ekki fyrr en þetta ár að forseti klúbbsins, Steingrímur Atlason, fékk nokkra vaska drengi í lið með sér og verkið var unnið.

Frá vígslu á útsýnisskífunni á ÁsfjalliÞessir félagar voru auk forsetans: Jón Bergsson og Sigurbjörn Kristinsson, Gísli Guðmundsson, Hjalti Jóhannsson, Einar Ágústsson og Gunnar Hjaltason. Gunnar heitinn Ágústsson hafði einnig liðsinnt í þessum efnum. Lögðu þeir allir fram góð ráð, mikla vinnu og fagþekkingu án þess að ætlast til launa.

Útlagður kostnaður við verkið varð þó um 100 þúsund krónur og kom í hlut klúbbsins að greiða hann. Loks stóðu 14 manns á Ásfjalli við vígslu skífunnar 26. júní 1987. Forseti og Jón Bergsson röktu sögu framkvæmda og veðurguðir sáu um hressilega vatnsskírn því að regn bókstaflega hvolfdist úr loftinu.

Vígsluskálina hafði forseti í fórum sínum og þótti mönnum ekki vanþörf á. Þegar menn bergðu á veigunum reyndust þær vera íslensk mysa. Sló þá þögn á mannskapinn!

Frá vígslu á útsýnisskífunni á Ásfjalli - með mysu á flösku - Steingrímur Atlason

Ljósmyndir: Gísli Jónsson




Hfj_haus_01