70. umdæmisþing Rótarý á Íslandi
MENNTUN – SAGA – MENNING
Borgarnesi 9. - 10. október 2015
70. umdæmisþing Rótarý á Íslandi verður haldið í Hótel Borgarnesi dagana 9. og 10. október 2015.
Það er okkur félögunum í Rótarýklúbbi Borgarness sönn ánægja að bjóða ykkur og og maka ykkar innilega velkomin á þingið og vonum að þið megið eiga ánægulega heimsókn í Borgarnes þessa haustdaga. Dagskrá þingsins verður sambland af fróðleik og skemmtun ásamt hefðbundnum þingstörfum og er það von okkar að þinggestir njóti vel samverunnar. Sjá dagskrána hér
Gert er ráð fyrir að forsetar, ritarar og gjaldkerar allra Rótarýklúbba landsins mæti og verða sérstakir fræðslufundir fyrir þessa embættismenn klúbbanna á föstudeginum.
Eins og fram kemur í dagskrá þingsins hefst móttaka Þinggesta og skráning kl. 11:30 föstudaginn 9. október í Hótel Borgarnesi og þingsetning verður svo kl. 13:45 í Borgarneskirkju.
Opnað hefur verið fyrir vefskráningu og eru rótarýfélagar hvattir til að skrá sig ásamt mökum sínum sem fyrst. Skráið ykkur hér
Gisting verður í Hótel Borgarnesi og þurfa félagar að bóka hana sjálfir. Sjá nánar á www.hotelborgarnes.is
Sendum ykkur öllum bestu rótarýkveðjur og vonumst til að sjá ykkur sem flest í Borgarnesi í október.
Þórir Páll Guðjónsson, formaður undirbúningsnefndar.
Birna Guðrún Konráðsdóttir, forseti Rótarýklúbbs Borgarness