Fyrir forseta og ritara
Ritarar og forsetar bera ábyrgð
- Viðhalda félagatali klúbbsins í félagakerfinu og hjá RI (My Rotary).
- Fylgjast með að rótarýfélagar viðhaldi sínum persónuupplýsingum í félagakerfinu, mjög nauðsynlegt er að tölvupóstfang (e-mail) sé rétt og gaman að nýlegar myndir séu af öllum.
- Stofna og viðhalda upplýsingum um nefndir og fólk í nefndum klúbbsins í samstarfi.
- Stofna í upphafi starfsárs rótarýfundi í félagakerfinu fyrir allt starfsárið.
- Uppfæra tímanlega dagskrár funda og staðsetningu.
- Skrifa fundargerð og afrita í félagakerfið strax eftir rótarýfundi.
- Skrá mætingar félaga klúbbsins og gesta úr öðrum klúbbum strax eftir fundi.
- Tryggja að allir klúbbfélagar þekki aðkomu að félagakerfinu og hafi lykilorð. Notendanafn rótarýfélaga er kennitala hans, upphafs lykilorði getur rótarýfélagi breytt siðar sjálfur í félagakerfinu.