Verðandi umdæmisstjóri 2018-2019
Garðar Eiríksson
Verðandi umdæmisstjóri 2018-2019
Garðar Eiríksson gerðist rótarýfélagi í Rótarýklúbbi Selfoss 6. apríl 2010.
Hann er giftur Önnu Vilhjálmsdóttur textílkennara og eig þau 3 börn og 5 barnabörn.
Menntun:
- Samvinnuskólapróf 1972
- Bankamannaskólinn 1973
- Ýmis endurmenntun frá HÍ og HR síðar, í fjármála-, rekstrar- og skattamálum.
Starfsferill:
- Bankastarfsmaður 1972-1991. Útibússtjóri hjá Samvinnubankanum 1974-1981 og síðar hjá Landsbankanum og Búnaðarbankanum eða alls í 14 ár sem útibússtjóri.
- Eigið bókhalds- og ráðgjafarfyrirtæki 1991-1995.
- Skrifstofu- og fjármálastjóri Mjólkurbús Flóamanna 1996-2006.
- Deildarstjóri Mjólkursamsölunnar ehf. 2007
- Fjármálastjóri Mjólkursamsölunnar ehf. 2008.
- Forstöðumaður og verkefnasjóri Auðhumlu svf. (móðurfélags MS) frá 2009 -2015
- Framkvæmdastjóri Auðhumlu svf. 2016 -
Félagsstörf:
- Forseti Rkl. Selfoss 2013-2014
- Björgunarsveitarmaður frá 1974 til dags dato = 43 ár.
- Í stjórn Slysavarnafélags Íslands og framkvæmdaráði félagsins 1988-1999 sem gjaldkeri
- Í stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar 1999-2003 sem gjaldkeri og varaformaður.
- Félagskjörinn skoðunarmaður Slysavarnafélagins Landsbjargar 2003 og er enn.
- Í fjölmörgum nefndum og stjórnum á vegum þessara samtaka í gegnum árin m.a. varamaður í stjórn Neyðarlínunnar 112 og kom að undirbúningi og stofnun hennar.