Fréttir frá umdæmisstjóra

18.6.2010

Heimasíðan

Heimasíðan hefur nýst okkur vel sem starfstæki. Mætingar eru skráðar á síðuna og hún var ötullega nýtt við undirbúning umdæmisþingsins. Allar skráningar fóru fram á síðunni. Það er ýmislegt sem við eigum eftir að laga í ljósi reynslunnar en almennt séð hefur heimasíðan nýst okkur vel. Nú er næsta verkefni að nýta síðuna sem lifandi fréttamiðil. Einu vil ég koma á framfæri: Nokkuð hefur borið á því að klúbbarnir hafi ekki endurnýjað mætingarkortin sín. Hver klúbbur þarf að eiga mætingarkort. Ástæðan er sú að oft koma erlendir Rótarýfélagar í heimsókn og þá þarf að afhenda þeim kort til að taka með sér heim í sinn klúbb.

Ýmsar leiðbeiningar og fróðleik má finna hér: http://www.rotary.is/rotaryklubbar/thjonusta/


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning