Fréttir
  • Erlendur Guðmundsson

20.9.2017

Erlendur Guðmundsson er látinn

Fæddur 12. júlí 1943 - látinn 14. september 2017

Rótarýfélagi okkar Erlendur Guðmundsson er fallinn frá eftir stutt veikindi. Erlendur gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 8. október 2009 og var alla tíð virkur félagi. Kynni hans og klúbbsins eru þó lengri en hann flaug með klúbbinn til Vesturheims árið 2002.

Erlendur Guðmundsson 2002Hann var góður sögumaður og hafði gaman að segja frá því sem á daga hans hafði drifið í starfi sínu sem flugmaður og flugstjóri. Voru þriggja mínútna erindi hans á klúbbfundum ávallt mjög skemmtileg og áhugaverð. Erlendur kom óvenjulega leið í klúbbinn, kom inn þegar hann hafði lokið sínu fasta ævistarfi, en hann hafði greinilega nóg fyrir stafni, við útgáfu á Iceland Information Guide sem hann gaf út í 33 ár og hafði nýlokið útgáfu á þegar hann dó.

Klúbbfélagar flytja eftirlifandi eiginkonu, Ingunni Ernu Stefánsdóttur og fjölskyldu allri samúðaróskir og þakka fyrir ánægjulega samveru.

Hfj_haus_01