Fréttir

10.9.2004

Líður að brottför

Nú líður senn að ferð klúbbsins til Brussel þar sem félagi okkar Kjartan Jóhannson mun taka á móti hópnum sem telur 60 manns. Annars hefur fréttasíðunni borist litlar fréttir af ferðinni en kynningarfundur verður miðvikudaginn 15. september og er hann opinn öllum félögum. Þangað kemur Björn Friðfinnsson og segir frá mörgu fróðlegu um Brussel. Ferðin hefst fimmtudaginn 30. september og komið til baka þriðjudaginn 5. október. Fararstjórar eru Hjördís Guðbjörnsdóttir og Sigurþór Aðalsteinsson.

Hfj_haus_01