Fréttir

19.10.2003

Vel heppnuð árshátíð

Fleiri myndir

Klúbburinn hélt glæsilega árshátíð í gær í samstarfi við dótturklúbbinn, Straum. Auk þeirra voru gestir frá Rótarýklúbbi Akureyrar, Sauðárkróks og Ólafsvíkur sem gerði árshátíðina enn hátíðlegri.

Bræðurnir Guðmundur og Haraldur Jónssynir buðu af höfðingskap gestunum í fordrykk og tóku þeir ásamt mökum sínum og móður sinni Marinellu á móti gestum í húsakynnum Sjólaskipa við Bæjarhraunið.

Glæsilegur matur, söngur gestanna og Bergþórs Pálssonar var með til þess að gera þessa árshátíð ógleymanlega og Páll veislustjóri las upp brot úr sögu klúbbsins og Íslands og smeygði nokkrum léttum inn á milli. Dansinn dunaði svo fram á nótt á yfirfullu dansgólfinu.


Hfj_haus_01