Fréttir
Guðni hleypur 1/2 maraþon til styrktar Polio Plus
Skorað á rótarýfélaga að heita á hann
Nú stendur yfir átak til að ljúka baráttunni við lömunarveiki í heiminum en Rótarýhreyfingin hefur lagt gríðarlegt fjármagn og vinnu til að svo megi verða. Nú Polio Plus nefnd umdæmisins lagði til að rótarýfélagar hlypu í Reykjavíkurmarþoninu og söfnuðu áheitum. Guðni Gíslason, félagi í klúbbnum, tók þessari áskorun og hefur þegar safnað 50 þúsund kr. - Ert þú búin(n) að leggja baráttunni lið?
Fyrirtæki geta líka stutt átakið gegn lömunarveiki með því að heita á Guðna eða aðra sem hlaupa til styrktar verkefninu. Útrýmum lömunarveiki í heiminum - við getum hjálpað!
Til að heita á Guðna farið á vefinn http://www.hlaupastyrkur.is/ en slóðin á síðu Guðna er http://www.hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=2157