Friðarstyrkir

Alþjóðlegir friðarstyrkir Rótarý

Rótarýsjóðurinn, Rotary Foundation, sem rekinn er af alþjóða Rótarýhreyfingunni, mun veita allt að 50 styrki til tveggja ára meistaranáms skólaárin 2019-2021. Styrkirnir verða veittir til náms og rannsókna, sem tengjast alþjóðasamstarfi og eflingu friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar hefur reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu háskólagráðu.

 

Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á samvinnu við sex virta háskóla:

  • Duke University and University of North Carolina at Chapel Hill, Bandaríkjunum
  • International Christian University, Tokyo, Japan  
  • University of Bradford, West Yorkshire, Englandi
  • University of Queensland, Brisbane, Ástralíu
  • Uppsala University,Uppsala, Svíþjóð
  • Chulalongkorn University, Bangkok, Thailandi

Friðarstyrkir Rótarý

Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnisstyrkir. Umsækjendur skulu að loknu háskólaprófi hafa aflað sér umtalsverðrar reynslu af störfum við mannúðarmál innan lands eða utan. Rótarýhreyfingin á Íslandi getur mælt með umsókn með hliðsjón af viðtali og könnun á námsferli og störfum. Makar, afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki sótt um styrkinn. Ellefu Íslendingar hafa hlotið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir árið 2002.

Nánari upplýsingar um námið, háskólana, umsóknarskilmála og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðunni

https://www.rotary.org/myrotary/en/get-involved/exchange-ideas/peace-fellowships

og hér: https://vimeo.com/channels/1170480/200898257

Facebook síða

Einnig má nálgast upplýsingar á skrifstofu Rótarýumdæmisins, sími 568 2233 (eða í síma 5439216).

Umsókn

Umsækjendur eru beðnir kynna sér ítarlega reglur sjóðsins og fylla út umsóknareyðublað hér: https://my.rotary.org/en/peace-fellowship-application

Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru beðnir um að fylla út umsóknareyðublað á netinu,  prenta og senda  fyrir 31. maí 2018 ásamt ítarlegu æviágripi, lýsingu á markmiði með framhaldsnámi og meðmælum til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, merkt “Friðarstyrkur”.

Umsóknarfrestur er til 31. maí 2018

Íslenskir styrkþegar:

2002-04 Helga Bára Bragadóttir, mannfræðingur. Var við nám í Bradford

2003-05 Helga Þórólfsdóttir, félagsráðgjafi. Var við nám í Bradford

2004-06 Rún Ingvarsdóttir, mannfræðingur. Við nám í Berkeley

2005-07 Ólöf Magnúsdóttir, hagfræðingur. Var við nám í Queensland.

2006-08 Pálin Dögg Helgadóttir, mannfræðingur. Var við nám í Bradford.

2008 Fanney Karlsdóttir. Var við nám í Brisbane

2009 Pálína Björk Matthíasdóttir. Var við nám í Duke í N-Karólínu

2010 Erla Sigurlaug Sigurðardóttir. Var við nám í Quensland.

2011 Sólveig Björk Sveinbjörnsdóttir. Var við nám í Queensland

2013 Jórunn Edda Helgadóttir. Var við nám í Uppsölum




Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning