Fréttir frá umdæmisstjóra

12.9.2008

Þema septembermánaðar - Mánuður nýrra kynslóða

Skv. mánaðatali Rotary International er september mánuður nýrra kynslóða, þ.e. klúbbum er bent á að fjalla um málefni á a.m.k. einum fundi er lúta að yngri kynslóðinni, afkomendum okkar.  Eins og fram hefur komið leggur forseti Rotary International, D.K. Lee, ríka áherslu á baráttuna gegn hárri dánartíðni barna af ýmsum orsökum, þ.e. vegna fátæktar, stríðsátaka, sjúkdóma, vatnsskorts, þekkingarleysis og ofbeldis af ýmsum toga. Talið er að í heiminum látist um 30 þúsund börn á degi hverjum!

Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning