Fréttir frá umdæmisstjóra

26.8.2013

Rótarýsjóðurinn – greiðum í Annual Fund

Eins og öllum er kunnugt þá er Rótarýsjóðurinn rekinn með öðru sniði en áður. Einstakir klúbbar og umdæmi Rótarý eiga nú meiri möguleika en áður að láta gott af sér leiða með beinum hætti. Með að greiða í Annual Fund tryggjum við að hluti af okkar framlagi komi til baka í verkefni sem við viljum taka þátt í og leggja lið.

Forsetar og gjaldkerar eru hvattir að setja inn i rekstraráætlun klúbbanna ákveðna upphæð til Rótarýsjóðsins, fyrir utan fasta gjaldið. Mikilvægt er að framlög séu greidd með kreditkorti viðkomandi klúbbs, sem tryggir að framlagið fari beint í sjóðsinneign viðkomandi klúbbs.

Framlög i Polio sjóðinn eru nú mikilvæg vegna mænuveikifaraldursins sem hefur greinst i Sómalíu og við munum fljótlega fá hvatningu til að safna sérstaklega vegna þess.

Sjá nánar undir My Rotary á www.rotary.org


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning