Fréttir frá umdæmisstjóra

8.6.2011

Alþjóðaþing Rótarýhreyfingarinnar

Dagana 21.-25. maí sl. fór fram hið árlega alþjóðaþing rótarýmanna sem að þessu sinni var haldið í New Orleans. Hátt í 20.000 rótarýfélagar alls staðar að úr heiminum sóttu þingið sem tókst með miklum ágætum þrátt fyrir að verðurguðirnir léku suðurríki Ameríku grátt þessa dagana.

Dagskráin var fjölbreytt og segja má að boðið hafi verið upp á allt sem hugsast getur í fræðslu, skemmtun og menningu. Næsta alheimsþing verður haldið í Bankok 6.-9. maí 2012.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning