Fréttir frá umdæmisstjóra

19.4.2011

Framlög í Rótarýsjóðinn

Miðað við stöðuna í byrjun aprílmánaðar eru framlög frá klúbbum í umdæminu komin í 8.942 USD en tólf klúbbar hafa greitt í sjóðinn. Áætlanir klúbbanna við upphaf starfsársins um framlög til sjóðsins voru yfir 30.000 USD svo enn er langt í land.
Einfaldast er að greiða í gengum heimasíðu RI rotary.org með kreditkorti klúbbsins. Fylla þarf út eyðublað og senda um leið. Vegna gjaldeyrishafta hefur verið erfiðara að greiða í Rótarýsjóðinn í gegnum banka venga þess að krafist er reiknings. Sjá nánar um framkvæmd greiðslna undir Rótarýsjóðurinn www.rotary.is/umrotary/verkefni/sjodurinn/greidslur/ 

Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning