Fréttir frá umdæmisstjóra

19.4.2011

Ritnefnd umdæmisins

Heimasíða umdæmisins rotary.is og þar með heimasíður klúbbanna er okkar helsta málgagn og fréttamiðill. Fréttaflutningur á heimasíðu umdæmisins hefur eflst og ekki síst nú að undanförnu eftir stofnun nýrrar ritnefndar sem ég hef sagt frá í fyrri mánaðarbréfum.

Flestir klúbbar á landinu hafa nú tilnefnt vefstjóra og margir þeirra hafa nú þegar hitt ritnefndarmenn umdæmisins og farið yfir hagnýtar upplýsingar um notkun síðunnar. Vefstjórar klúbbanna eru hvattir til að vera í sambandi við ritnefndina ritnefnd@rotary.is sem getur veitt allar upplýsingar og kennslu um innfærslu og notkun á síðunni.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning