Fréttir frá umdæmisstjóra

20.3.2011

Aðeins 8 klúbbar hafa styrkt Rótarýsjóðinn

Til margra ára höfum við verið stolt yfir því hve myndarlega umdæmið okkar hefur styrkt Rótarýsjóðinn. Það er eðlilegt að dregið hafi úr framlögum vegna þeirrar efnahagsvandamála sem dunið hafa yfir þjóðina en ég hef lagt áherslu á að ALLIR klúbbar sendi framlag til sjóðsins. Nú eru aðeins þrír mánuðir eftir af umdæmisárinu og þeir líða fljótt. Ég vil því hvetja alla klúbba til að greiða til sjóðsins á næstu vikum.

Einfaldast er að greiða í gengum heimasíðu RI rotary.org með kreditkorti klúbbsins. Fylla þarf út eyðublað og senda um leið. Vegna gjaldeyrishafta hefur verið erfiðara að greiða í Rótarýsjóðinn í gegnum banka vegna þess að krafist er reiknings. Sjá nánar um framkvæmd greiðslna www.rotary.is/umrotary/verkefni/sjodurinn/greidslur/  þá getur skrifstofa umdæmisins leiðbeint um framkvæmd greiðslunnar.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning