Fréttir frá umdæmisstjóra

16.2.2011

Skráning verkefna Rótarýklúbba á heimasíðu

Verkefnanefnd umdæmisins vinnur nú að því að safna saman upplýsingum frá klúbbunum um þau verkefni sem klúbbarnir hafa staðið að bæði skammtímaverkefni og verkefni sem ná yfir lengri tíma.

Pálín Ósk Einarsdóttir og Brynhildur Klemensdóttir í verkefnanefnd umdæmisins og félagar í Rótarýklúbbi Reykjavík, Grafarvogur hafa nú sett sig í samband við flesta klúbbana til að afla þessara upplýsinga og eru ritarar beðnir um að bregðast vel við þessu erindi.  Tilgangur þessa er að til séu á einum stað á heimasíðunni www.rotary.is aðgengilegar upplýsingar um þau fjölmörgu áhugaverðu verkefni sem klúbbar um allt land vinna að og þannig sé hægt með auðveldum hætti að glöggva sig á því starfi sem fram fer hjá klúbbunum.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning