Fréttir frá umdæmisstjóra

10.1.2011

Tíundi friðarstyrkurinn

Tilkynnt hefur verið að umsækjandi okkar umdæmis um friðarstyrk rótarý (Rotary World Peace Fellow) Sólveig Sveinbjörnsdóttir hafi fengið þessa viðurkenningu. Um leið og ég óska henni til hamingju get ég ekki látið hjá líða að geta þess að Sólveig er tíundi friðarstyrksþeginn frá Íslandi til þess að hljóta þessa vegsemd.

Reglur um þessa styrki kveða á um að einungis einn umsækjandi geti komið frá hverju umdæmi en það eru veittir allt að 60 styrkir á ári.Tíu ár eru síðan þessi styrkveiting hófst og hefur okkar umsækjandi því alltaf verið valinn. Þetta er glæsilegur árangur og er eftir honum tekið í alþjóðasamfélagi rótarý þar sem Ísland er eina landið í rótarýfjölskyldunni sem alltaf hefur fengið friðarstyrk.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning