Fréttir frá umdæmisstjóra

10.1.2011

Ritnefnd heimasíðu – vefstjórar

Meirihluti klúbba hefur nú tilkynnt um vefstjóra til ritnefndar umdæmisins. Forsetar þeirra klúbba sem ekki hafa svarað kalli ritnefndar eru hvattir til að senda henni upplýsingar um vefstjóra sína á ritnefnd@rotary.is, Ritnefndin hefur þegar heimsótt fyrstu klúbbana á landsbyggðinni og leiðbeint um notkun og skráningu á heimasíðuna.

Fyrirhugað er að bjóða vefstjórum klúbbanna á Reykjavíkursvæðinu til fundar á skrifstofu umdæmisins á næstu vikum þar sem kennd verður skráning og innfærsla á síðuna s.s. á fréttum, myndum og öðru því efni sem klúbbarnir vilja hafa á síðunni. Þá eru vefstjórar á landsbyggðinni hvattir til að hafa samband við ritnefnd ef þeir eiga erindi til Reykjavíkur og nýta ferðina til að fá tilsögn. Ritnefndarmenn hafa jafnframt hug á því að leggjast í ferðalög með vorinu og heimsækja sem flesta klúbba á landsbyggðinni. Allir rótarýfélagar eru hvattir til að skoða reglulega heimasíðuna rotary.is en ekki þarf lykilorð inn á heimasíðuna.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning