Fréttir frá umdæmisstjóra

18.6.2010

Vigdís hlýtur æðstu orðu Rótarýhreyfingainnar

Á nýafstöðnu umdæmisþingi var frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, veitt æðsta heiðursorða sem umdæmið getur veitt einstaklingi, Paul Harris með þremur rúbínsteinum.

Rotthing_GG_2010_kvold_138Vigdís er einlægur Rótarýfélagi en hún er í Rklþ Reykjavík Miðborg. Hún sækir alla fundi sem hún hefur tök á og er sannarlega virkur félagi. Þegar hún bjó í Danmörku um nokkurra ára skeið gerðist hún félagi í Rótarýklúbbnum á Frederiksbergi. Þar er hún nú heiðursfélagi sem og í Rkl. Reykjavík Miðborg. Vigdís fagnaði 80 ára afmæli sínu þann 15. apríl síðastliðinn. Rklþ Reykjavík Miðborg heiðraði Vigdísi með fundaröð um ævi hennar og störf. Við töldum við hæfi að sýna henni ást okkar og virðingu með því að sæma hana Paul Harris orðu með þremur rúbínsteinum sem þakklætisvott fyrir þá tryggð og ræktarsemi sem hún hefur sýnt Rótarý á Íslandi frá því að hún gekk til liðs við hreyfinguna við stofnum Rklþ Reykjavík Miðborg 1994.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning