Fréttir frá umdæmisstjóra

18.6.2010

Leggið fé í Rótarýsjóðinn

Nú nálgast 1. júlí óðfluga. Einungis 11 klúbbar hafa lagt sjóðnum lið í formi framlaga. Ég minnist þess ekki að á þessum tímapunkti hafi hlutfallið verið jafn lágt, 11 af 30 klúbbum. Ýmsar skýringar eru fyrir hendi og þá fyrst og fremst skýringar sem tengjast efnahagsástandinu. Ég hvet klúbba eindregið til að láta eitthvað af hendi rakna. Upphæðirnar þurfa ekki að vera háar, en við þurfum að undirstrika með framlögum hve mikils við metum það starf sem Rótarýsjóðurinn vinnur um víða veröld.

Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning