Fréttir frá umdæmisstjóra
  • Rotary_formot_2010_gg_017

29.3.2010

Annasamur marsmánuður

Marsmánuður er mánuður mikilla anna hjá umdæminu. Verið er að hnýta alla hnúta vegna skiptinemanna. Af GSE samskiptum er það að frétta að þann 25. mars fór 5 manna hópur á okkar vegum til Kansas til að heimsækja umdæmi 5670, sem er í vesturhluta ríkisins. Jafn stór hópur kemur til okkar í lok maí og mun m.a. vera með okkur á umdæmisþinginu. PETS mótið var haldið 20. mars . Vinna er í hámarki hjá klúbbi umdæmisstjóra við undirbúning umdæmisþingsins þann 5. júní nk.

Með kærri rótarýkveðju og óskum um gleðilega páska.
Sveinn H. Skúlason, umdæmisstjóri umdæmis 1360


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning