Fréttir frá umdæmisstjóra

23.12.2009

Gleðileg jól

 

Eins og ég sagði í upphafi er desember mánuður fjölskyldunnar, RÓTARÝ-FJÖLSKYLDUNNAR.. Eftir heimsóknir mínar til ykkar félaganna, í klúbbana ykkar, upplifi ég mig mjög sterkt sem hluta af þessari fjölskyldu.

Ég vil ítreka þakkir okkar hjóna fyrir frábærar móttökur og sendi ykkur okkar bestu jóla og nýárskveðjur, með þökkum fyrir frábærar samverustundir á árinu sem er að líða.

Þetta hefur verið gott Rótarýár og við skulum sameinast í að komandi ár, árið 2010, verði ekki síðra.

Sólveig Erlendsdóttir
Sveinn H. Skúlason, umdæmisstjóri

Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning