Fréttir frá umdæmisstjóra

5.8.2009

EEMA ráðstefna á Íslandi

Dagana 4. - 6. september nk. verður haldin ráðstefna á á Íslandi á vegum EEMA. EEMA eru samtök þeirra sem annast æskulýðsmál á vegum Rótarýs.

Ráðstefna þessi er haldin árlega og þar ráða menn ráðum sínum um starf og áherslur næsta árs. Það er okkur mikill heiður að ráðstefnu þessa árs var valinn staður á Íslandi. Nú þegar hafa tæplega 200 skráð sig til þátttöku. Íslenskir rótarýfélagar eru hvattir til þátttöku. Þetta er einstakt tækifæri til að hitta erlenda rótarýfélaga. Jón Ásgeir Jónsson, hin mikla kempa í æskulýðsmálum umdæmisins, leiðir undirbúningshópinn.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning