Um Rótarý
Markmið Rótarý
Markmið Rótarý er að efla og örva þjónustuhugsjónina sem grundvöll heiðarlegs starfs og þó einkum að efla og örva:
- þróun kunningsskapar, svo að hann veiti tækifæri til þjónustu.
- háleitar siðgæðiskröfur í viðskiptum og starfi, viðurkenningu á gildi allra nytsamra starfa og viðurkenningu þess, að sá, sem innir gott starf af hendi í starfsgrein sinni, sé samfélaginu þarfur þegn.
- viðleitni hvers rótarýfélaga til að breyta samkvæmt þjónustuhugsjóninni í einkalífi sínu, starfi og félagsmálum.
- alþjóðlegan skilning, velvild og frið með alheims félagsskap manna í öllum starfsgreinum, sem sameinast í þjónustuhugsjóninni.
Fjórpróf rótarýmanna
- Er það satt og rétt?
- Er það drengilegt?
- Eykur það velvild og vinarhug?
- Er það öllum til góðs?