Síðasta ferðin
Siðasta ferðin var yfirskriftin á erindi Elínar Hirst fréttamanns á fundi Rótarýklúbbs Grafarvogs þann 19.nóvember s.l. Í erindinu fjallaði Elín um heimildamynd um vesturfarana sem hún er með í smíðum og stendur til að frumsýna um jólin.

Nafnið er dregið af þeim tregafullu tilfinningum sem bærðust í brjósti margra ferðalanga þegar þeir horfðu á Íslandsstrendur hverfa í blámann og vissu að þeir myndu aldrei aftur líta heimalandið. Áhugavert efni sem á erindi við okkur ekki síður á þessum tímum en fyrir rúmri öld þegar fjöldi fólks flúði heimalandið vegna ömurlegs efnahags og náttúruhörmunga.
AÞ