Fréttir

10.9.2015

Morgunblaðið heimsótt

Rótarýklúbburinn heimsótti Morgunblaðið þann 9. september. Vel var tekið á móti félögum sem fengu fræðslu um það hvernig blað verður til - þ.e. prentunina og hönnunina. Skrifin voru látin liggja milli hluta. 

Heimsóknin var afar vel heppnuð og ljóst að félagar vita nú talsvert meira en áður um prentun og frágang dagblaða! Á myndinni má sjá gamla en trausta prentvél sem hefur væntanlega komið ýmsum fréttum til lesenda...