Fréttir

Búðarhálsvirkjun

Jón Þór hafði veg og vanda að heimsókn í Búðarhálsvirkjun.

Farin var dagsferð í Búðarhálsvirkjun og virkjunin skoðuð.

Lagt var af stað snemma á laugardagsmorgni austur í Búðarhálsvirkjun. Mæting var góð og hafði mökum verið boðið með í ferðina. Tekið var á móti hópnum í vinnubúðum Landsvirkjunar við Búðarháls og boðið upp á hádegisverð og síðan fyrirlestur um framkvæmdina. Að því loknu var farið í skoðunarferð um virkjunarsvæðið. Ferðin var vel skipulögð og fróðleg. Á heimleið var stoppað í Aldinreit við Heklurætur og síðan á Heklusetri og Heklusýningin skoðuð. Um kvöldið, þegar í bæinn var komið bauð Jón Þór öllum ferðafélögum í grillmat í Grafarvogi.