Fréttir

16.3.2012

Paul Harris félagi

Á fundi Rótarýklúbbs Grafarvogs þann 14. 3.2012 var Jón Þór Sigurðsson sæmdur Paul Harris merki.Paul Harris orðuveiting

Jón Þór er einn af stofnfélögum klúbbsins, frábær félagi. Hann hefur undanfarin ár staðið vörð um Rótarýsjóðinn fyrir hönd klúbbsins og verið óþreytandi í því að auka framlög í sjóðinn. Jón er maður sem ekki fer mikið fyrir en hefur sýnt styrk sinn sem félagi og forystumaður hvað eftir annað. Hann á það til að læða út úr sér skemmtilegum bröndurum þegar minnst vonum varir og auka þannig gleði og ánægju meðal félaga sinna.

Klúbburinn óskar Jóni Þóri til hamingju með verðskuldaðan heiður.