Dagskrá RR starfsárið 2014-2015
2014
1. fundur, 2. júlí: Starfskilafundur/stjórnarskipti.
22. ágúst: Berjaferð.
.Einar Falur Ingólfsson flytur erindið "Beygt út af brautinni - Frá Keflavík til Reykjavíkur"
3. fundur, 13. ágúst: Jón Kalmann Stefánsson kynnti bók sína "Fiskarnir hafa enga fætur" .
4. fundur, 20. ágúst: Ari Trausti Guðmundsson útskýrði jarðfræði Reykjanesskagans og jarðhræringar í Bárðarbungu..
5. fundur, 27. ágúst: Omega 3 fitursýrur eru málið - fyrirlestur Guðmundar G. Haraldssonar um merkar uppfinningar og framleiðslu úr íslensku hráefni.
6. fundur, 3. september:Ebólaveiran - varnir og viðbrögð. Erindi flytur Haraldur Briem.
Ólafur Hjálmarsson, hagstofustjóri flytur erindi um fjölbreytt verkefni Hagstofunnar
13. september 2014: Hátíðarveisla í tilefni 80 ára afmælis Rótarýklubbs Reykjavíkur, 18:45 hefst með fordrykk; hátíðarræða, tónlist og kjör heiðursfélaga.
8. fundur, 17. september: Víðir Reynisson, almannavarnardeild embættis ríkislögreglustjóra fjallar um jarðelda og náttúruvá.
9 . fundur, 24. september: Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur flytur erindi sem hann nefnir "Skuldaleiðrétting ríkisstjórnarinnar - framkvæmdin".
10. fundur, 1. október; Árni Heimir Ingólfsson: "Heimsmenningin og íslenskt sönglíf á 17. öld”.
11. fundur, 8. október; Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð flytur erindi um samfélagsábyrgð og áhrif hennar á rekstur fyrirtækja.
10.-11. október: Umdæmisþing í Garðabæ.
12. fundur, 15. október: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, dósent í heilsuhagfræði, mun flytja erindi sem hún nefnir “Borgar sig að bíða ? Um síðbúna umbun”.
: Bjarki Sveinbjörnsson, "ÍSMÚS gagnagrunnurinn”.
14. fundur, 29. október: Anna Stefánsdóttir, formaður "Spítalans okkar" og Jóhannes M. Gunnarsson, læknir, flytja erindi sem þau nefna “Spítalinn okkar - landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala”.
15. fundur, 5. nóvember: Heimsókn Guðbjargar Alfreðsdóttur, umdæmisstjóra Rótarý á Íslandi.
8. nóvember: Ferð RR á sýningu íslensku óperunnar á Don Carlo laugardaginn 8. nóvember. Miðarnir eru í salnum og kosta kr. 6.800. Félagar nálgast miða í miðasölunni.
16. fundur, 12. nóvember: Benedikt Jóhannesson flutur erindi sem hann nefnir "Heimurinn, tölurnar og Guð".
17. fundur, 19. nóvember: Geir H. Haarde ræðir samskipti Íslands og USA á næstu árum.
18. fundur, 26. nóvember: Guðmundur Þóroddson flytur erindi um útflutning þekkingu og reynslu á sviði orku og jarðvarma.
19. fundur, 3. desember: Vesturbærinn og veröldin. Ástráður Eysteinsson segir frá nýlegum skáldverkum Matthíasar Jóhannessen.
20. fundur, 10. desember: Gunnlaug Thorlacius, félagsráðgjafi ræðir um vinnu, sem miðar að því að hindra að vandamál foreldra hafi áhrif á heilsu og líðan barna síðar á lífsleiðinni.
21.fundur, 17. desember: Aðventukvöld í Dómkirkjunni.
22. fundur, 30. desember: Niðjafundur (14 ára og yngri).
2015
23. fundur, 7. janúar: Þorsteinn Víglundsson fjallar um kjarasamninga og hagstjórn.
24. fundur, 14. janúar: Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar flytja erindið “Framtíðarsýn Reykjanesbæjar - Að bæta námsárangur”.
25. fundur, 21. janúar: Kvöldfundur um innri málefni.
: Guðbjörg Jóhannesdóttir, sóknarprestur í Langholtssókn flytur erindið "Staða Þjóðkirkjunnar".
: Auður Hauksdóttir, stjórnarformaður og forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, flytur erindi um stofnunina og starfsemi hennar. Frú Vigdís fyrrv. forseti ávarpar félaga.
28. fundur, 11. febrúar: Birgir Jakobsson, landlæknir, fjallar um Embætti landlæknis og heilbrigðismál á Íslandi.
29. fundur, 18. febrúar: Róbert Haraldsson, prófessor í heimspeki við HÍ, talar um tjáningarfrelsi.
30. fundur, 25. febrúar: Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, heldur erindi um hljómsveitina og starfsemi hennar.
31. fundur, 4. mars: Kvöldfundur. Heimsókn í Zymetech, Fiskislóð 39 kl 17:00 og á Víkin-Sjómannasafni Reykjavíkur; kvöldverður Víkinni kl 19:00.
32. fundur, 11. mars: Kristján Davíðsson fjallar um sjávarútveginn í Noregi.
33. fundur, 18. mars: Kvöldfundur - spilakvöld undir styrkri stjórn Benedikts Jóhannesarsonar. Spennandi.
34. fundur, 25. mars: Rannveig Magnúsdóttir fjallar um matarsóun.
35. fundur, 1. apríl: Inga Lára Baldvinsdóttir safnvörður myndsafns Þjóðminjasafnsins.
36. fundur, 8. apríl: Ólafur Davíðsson, fyrrv. sendiherra í Berlín og ráðuneytisstjóri segir frá borginni og sögu hennar. Undirbúningur fyrir ferð RR félaga til Berlínar 7. -10. maí 2015.
37. fundur, 15. apríl: Ari Matthíasson, nýskipaður þjóðleikhússtjóri, segir frá því sem framundan er í leikhúsi landsmanna og nýjum áherslum.
38. fundur, 22. apríl: Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor, segir frá nýloknu eldgosu í Holuhrauni og áhrifum eldgoss á flugsamgöngur.
39. fundur, 29. apríl: Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, flytur starfsgreinaerindi sitt.
40. fundur, 6. maí: Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF, Samtaka ferðaþjónustunnar, ræðir um stöðu ört vaxandi atvinnugreinar.
7. -10. maí: Ferð RR til Berlínar (nánari dagskrá ferðar síðar)
41. fundur, 13. maí: Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri flytur erindi um framtíð Ríkisútvarpsins.
42. fundur, 20. maí: Trausti Jónsson veðurfræðingur spáir í sumarveðrið.
43. fundur, 27. maí: Niðjafundur, 15 ára og eldri. Salvör Nordal, stallari kynnir hlutverk Rótary og ræðir málin við gesti.
44. fundur, 3. júní: Jón Atli Benediktsson, prófessor og nýkjörinn rektor HÍ flytur erindi um Háskóla Íslands.
45. fundur, 10. júní: Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti flytur erindið "Skálholt í nútímanum".
46. fundur, 24. júní: Magnús Karl Magússon, prófessor við læknadeild HÍ flytur erindi sem hann nefnir: "Fjórðungi bregður til fósturs. Af samspili erfða og umhverfis í krabbameinsmyndun. "