Nefndir klúbbsins
Nefndir og trúnaðarstörf starfsárið 2017-2018
Nefndir og trúnaðarstörf
Nefndir og trúnaðarstörf innan Rótarýklúbbs Kópavogs eru af tvennum toga:
1. Nefndir samkvæmt lögum klúbbsins með þeim verkefnum sem mælt er fyrir um
2. Nefndir og trúnaðarstörf stofnuð með erindisbréfi forseta og samþykki stjórnar.
Um starf nefnda segir svo í lögum klúbbsins, gr. 8.3: Nefndir og einstakir embættismenn skulu starfa samkvæmt reglum Rótarý International og í anda grundvallarlaga og sérlaga klúbbsins og eftir reglum og tilmælum forseta og stjórnar
Formaður nefndar stjórnar fundum hennar og framkvæmdir í málum sem nefndina varða. Forseti klúbbsins getur sótt fundi í nefndum og jafnframt getur hann boðað nefndirnar til að sitja stjórnarfundi. Hann skal fylgjast með því að nefndirnar ræki skyldur sínar. Nefndirnar mega ekki nema með sérstökum fyrirmælum klúbbstjórnar hefja framkvæmdir nema þær hafa gert skýrslu um málið til klúbbstjórnar og hún fallist á hana.
1. Nefndir samkvæmt lögum klúbbsins
Klúbbþjónustunefnd (Félagsþjónustunefnd)
Nefndin er að jafnaði skipuð fyrrverandi forsetum klúbbsins og skal vera stjórninni ráðgefandi meðal annars varðandi fjármál klúbbsins.
Nefndin skal fyrir 1. nóvember ár hvert gera skrá um starfsgreinar sem talið er rétt að geti átt fulltrúa í klúbbnum, svo og hverjar eigi þar fulltrúa. Við gerð starfsgreinaskrárinnar og endurskoðun skal fara eftir reglum og leiðbeiningum sem Rótarý International gefur út. Skal nefndin benda á starfsgreinar, sem æskilegt væri að bæta við sem fulltrúa í klúbbnum. Nefndin er ráðgefandi varðandi opnun nýrra starfsgreina.
Nefndin skal athuga allar tillögur um nýja félaga, mannkosti þeirra, félagslyndi og álit, sem þeir njóta í starfi og þjóðfélaginu yfirleitt.
Nefndin sér um tvo fræðslufundi fyrir klúbbfélaga á starfsárinu: 5.sept og 15.maí
Nefndina skipa:
Formaður Magnús Már Harðarson
Aðrir nefndarmenn: Guðmundur Jens Þorvarðarson, Guðmundur Ólafsson og Þórir Ólafsson
Rótarýfræðslunefnd
Nefndin sér um að veita félögum, einkum nýjum félögum svo og félagaefnum, fræðslu um Rótarýhreyfinguna, sögu hennar, markmið, verkefni og störf. Einnig fræðslu um réttindi og skyldur.
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal enn fremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustuþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um tvo formlega fræðslufundi fyrir klúbbfélaga á starfsárinu: 22. ág og 30.jan
Nefndina skipa:
Formaður Benjamín Magnússon
Aðrir nefndarmenn: Jón Höskuldsson, Vilhjálmur Einarsson, Werner Rasmusson
Starfsþjónustunefnd
Nefndin skal annast um að klúbbfélagar einkum nýir félagar veiti fræðslu um starfsgrein sína til þess að félagar fái skilið starf og starfsaðstöðu hvers annars einnig um vandamál tengd starfinu svo og þjónustuhlutverk það sem hver um sig gegnir í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Nefndin bendir félögum á leiðir til þess að sinna þjónustuhlutverki sínu. Nefndin sér um kynningu fjórprófsins innan klúbbsins og utan.
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal enn fremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustuþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um fjóra formlega fundi fyrir klúbbfélaga á starfsárinu: 24.okt, 9.jan, 27.feb og 22.maí
Nefndina skipa:
Formaður Kristófer Þorleifsson
Aðrir nefndarmenn: Bolli Magnússon, Eggert Þór Kristófersson og Kristinn Dagur Gissurarson
Þjóðmálanefnd
Nefndin skal sjá um að helstu mál sveitarfélagsins og þjóðfélagsins verði kynnt félögum á fundum og leiðbeina þeim eftir föngum um það á hvern hátt þeir geta best lagt málum lið.
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal enn fremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um sex formlega fræðslufundi fyrir klúbbfélaga á starfsárinu: 3.okt, 5.des, 13.mars og 12.júní
Nefndina skipa:
Formaður: Ólafur Tómasson
Aðrir nefndarmenn: Bergþór Halldórsson og Páll Árni Jónsson
Alþjóðanefnd
Nefndin sér um fræðslu um alþjóðamál í víðasta skilningi. Þar með talið um viðhorf Rótarý til alþjóðamála og á hvern hátt Rótarýfélagsskapurinn getur stuðlað að og eflt velvild og gagnkvæman skilning þjóða í milli.
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal enn fremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustuþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um sex fræðslufundi fyrir klúbbfélaga á starfsárinu: 19.sept, 21.nóv, 20.feb og 5.júní
Nefndina skipa:
Formaður: Jóhann Árnason
Aðrir nefndarmenn: Björgvin Skafti Vilhjálmsson, Jón Sigurðsson og Sævar Geirsson
Skemmtinefnd
Nefndin sér um árshátíð svo og aðrar skemmtanir, sem klúbburinn heldur fyrir sig eða í samstarfi við aðra svo sem aðra
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal enn fremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustuþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um jólafundinn (kvöldfundur) þann 19. desember.
Nefndina skipa:
Formaður: Karl Magnús Kristjánsson
Aðrir nefndarmenn: Jóhann Árnason
2. Nefndir skipaðar af stjórn
Ungmennanefnd
Nefndin skal vera fulltrúi klúbbsins í æskulýðsstarfi svo sem gagnvart æskulýðsstarfi Rótarý-umdæmisins og Rótarý Internatirnational þar á meðal varðandi starfshópaskipti, skiptinema og námsstyrki og tengja fundarefni æskulýðsmálum eftir því sem við verður komið.
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal enn fremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustuþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um tvo fundi: 14.nóv (Niðjafundur), 6.feb.
Nefndina skipa:
Formaður: Margrét María Sigurðardóttir
Aðrir nefndarmenn: Guðmundur Þ. Harðarson
Menningarmálanefnd
Nefndin er vera fulltrúi klúbbsins í menningarmálastarfi svo sem að taka menningarmál til kynningar og umræðu á fundum klúbbsins og að skipuleggja heimsóknir klúbbsins á menningarviðburði. Einnig er nefndin tengiliður við menningarmálastarf Rótarýumdæmisins.
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal ennfremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustuþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um sex fundi á starfsárinu: 17.okt, 20.mars, 29.maí og 26. júní
Nefndina skipa:
Formaður: Helgi Sigurðsson
Aðrir nefndarmenn: Guðmundur Ólafsson, Þórir Ólafsson
Ferðanefnd
Nefndin hefur frumkvæði að sameiginlegum ferðalögum klúbbfélaga og maka þeirra, innan lands eða utan, og annast samstarf við þá aðila sem þar koma að málum. Einnig kynnir nefndin ferðamál á fundum klúbbsins eftir því sem við verður komið.
Formaður nefndarinnar kallar hana saman að minnsta kosti einu sinni snemma á starfsárinu eða oftar ef tilefni gefst til, þar sem farið er yfir væntanleg verkefni nefndarinnar á starfsárinu og verkefnum skipt upp á milli félaga. Formlegir nefndarfundir eru ígildi mætingar á Rótarýfund og sér formaður nefndarinnar um þá skráningu í samráði við ritara klúbbsins.
Nefndin skal enn fremur reyna að tilnefna til klúbbþjónustuþjónustunefndar að minnsta kosti einn nýjan mögulegan félaga í klúbbinn á starfsárinu og skal formaður nefndarinnar annast það.
Nefndin sér um þrjá fundi á starfsárinu: 10.okt, 16.jan og 8.maí.
Nefndina skipa:
Formaður: Sveinn Hjörtur Hjartarson
Aðrir nefndarmenn:Inga Hersteinsdóttir og Ólafur Wernersson
Landgræðslunefnd
Nefndin skal hafa forgöngu um uppgræðslu og trjárækt á land- svæði klúbbsins til slíks starfs og tekur landgræðslu og umhverfismál til umræðu á fundum klúbbsins eftir því sem við verður komið.
Nefndin sér um kvöldfund þann 29. ágúst
Nefndina skipa:
Formaður: Sævar Geirsson
Aðrir nefndarmenn: Ólafur Wernersson, Sigurður Jónsson og Vilhjálmur Einarsson
Viðurkenningarnefnd
Nefndin skal fylgjast með framúrskarandi frumkvöðlastarfi einstaklinga í Kópavogi og gera tillögu til stjórnar um það hver hljóta skuli viður- kenningu klúbbsins, eldhugann, sem veitt er árlega.
Nefndin ber einnig að leggja mat á efni og flutning fyrirlestra sem haldnir eru á fundum klúbbsins og skila tillögu til stjórnar um hver eða hverjir þeirra skuli hljóta viðurkenningu.
Nefndin sér um kynningu á eldhuga Kópavogs fyrir klúbbfélaga þann 6.mars
Nefndina skipa:
Formaður: Eiríkur Líndal
Aðrir nefndarmenn: Ásgeir Jóhannesson, Guðbergur Rúnarsson og Guðmundur Björn Lýðsson
Laganefnd
Nefndin skal endurskoða lög klúbbsins á starfsárinu með það að markmiði að þau endurspegli vel það fyrirkomulag á starfsemi klúbbsins sem félagar telja heppilegt og að lögin séu í samræmi við lög Rótarýumdæmisins og Rótarý International.
Nefndin sér um einn fræðslufund fyrir klúbbfélaga á starfsárinu þann 23.jan
Nefndina skipa:
Formaður: Jón Ögmundsson
Annar nefndarmaður: Margrét María Sigurðardóttir
Skoðunarmen reikninga
Guðmundur Jens Þorvarðarson, Ásgeir Jóhannesson.
Umsjónarmaður heimasíðu
Guðmundur Ólafsson