Keppt er árlega um Stefánsbikarinn
Golfáhugi innan klúbbsins hefur farið mjög vaxandi
Myndin er af 9 klúbbmeisturum, sem komu saman við golfskála GKG á fallegum vetrardegi skömmu fyrir útgáfu 50 ára afmælisbókarinnar. Taldir frá vinstri: Stefán, Valur, Gunnar, Jóhann, Ingólfur, Rögnvaldur, Guðmundur Arason, Ólafur og Guðmundur Ólafsson. Á myndina vantar tvo klúbbmeistara: Jón Björnsson heitinn og Jón Hauk, sem var búsettur erlendis, þegar myndin var tekin.
Golfíþróttinni hefur vaxið mjög fiskur um hrygg undanfarna áratugi hér á landi eins og víðast hvar annars staðar í heiminum. Er nú svo komið að á Íslandi er golf næstfjölmennasta íþróttagreinin á eftir fótbolta. Sama þróun hefur átt sér stað í Rótarýklúbbi Kópavogs. Fyrir um 30 árum voru 2-3 kylfingar í klúbbnum, en á seinustu árum hefur fjöldi klúbbfélaga, sem stunda golf í einhverjum mæli, verið nálægt 20. Sumum hefur jafnvel þótt golfáhuginn í klúbbnum keyra úr hófi fram og til marks um það kom einhverju sinni fram fyrirspurn á Rótarýfundi, þar sem spurt var hvort þetta væri fundur í Rótarý eða golfklúbbi!
Frá árinu 1998 hefur árlegt golfmót innan klúbbsins verið fastur liður í félagsstarfinu. Í leikslok er golfmeistari Rótarýklúbbs Kópavogs krýndur og fær til varðveislu farandbikar, sem Stefán Pálsson gaf klúbbnum. Framkvæmd mótsins er með svipuðu sniði og Eurovision söngvakeppnin að því leyti að sigurvegarinn sér alfarið um framkvæmd mótsins næsta ár á eftir. Hann er einvaldur, ræður keppnisstað, keppnisfyrirkomulagi, sér um verðlaun o.s.frv. Sannast hér að vandi fylgir vegsemd hverri!
Eftirtaldir klúbbfélagar hafa fengið nöfn sín skráð á hinn eftirsótta bikar:
Ár | Klúbbmeistari |
1998 | Stefán Pálsson |
1999 | Rögnvaldur Jónsson |
2000 | Guðmundur Ólafsson |
2001 | Guðmundur Arason, vfr. |
2002 | Guðmundur Ólafsson |
2003 | Gunnar Magnússon |
2004 | Jóhann Árnason |
2005 | Ólafur Tómasson |
2006 | Jón Haukur Sigurðsson |
2007 | Féll niður vegna veðurs! |
2008 | Jón Björnsson |
2009 | Valur Þórarinsson |
2010 |
Ingólfur Antonsson |
2011 | Jóhann Árnason |
2012 | Guðmundur Ólafsson |
2013 | Helgi Ólafsson |
2014 | Valur Þórarinsson |
2015 | Féll niður vegnaveðurs! |