Ferðir innanlands
Ferðir innanlands
Fátt er betur til þess fallið að efla kynningu og samstöðu meðal félaga í Rótarýklúbbum en ferðalög á vegum klúbbsins, hvort sem er hér innanlands eða til útlanda.
Ferðir innanlands hafa yfirleitt verið eins dags sumar- eða haustferðir og hefur verið reynt að fara a.m.k. eina ferð á hverju ári. Þátttakendur í þessum ferðum hafa verið 20 - 40 manns, Rótarýfélagar og makar þeirra.
Ferðirnar hafa ýmist verið farnar á fyrirfram ákveðnar slóðir eða auglýstar sem óvissuferðir.
Sem dæmi um áfangastaði má nefna af handahófi ferðir:
- um Rangárvelli á sögustaði Njálu
- í Brekkuskóg og Haukadal
- um Hvalfjörð og Borgarfjörð þar sem saga hersetunnar var rifjuð upp og söguslóðir heimsóttar í Borgarfirði
- í Viðey
- í Dalina á söguslóðir Laxdælu