Lög klúbbsins

GRUNDVALLARLÖG   Rótaryklúbbs Héraðsbúa


GRUNDVALLARLÖG RÓTARÝKLÚBBA*)

Grundvallarlög   Rótarýklúbbs Héraðsbúa, sem stofnaður var 22. október 1965 og starfar í umdæmi nr. 1360 með alþjóðanúmer 9801.

1. grein  Skilgreiningar

Í þessum grundvallarlögum hafa orðin hér á eftir þá merkingu sem hér segir nema annað leiði augljóslega af samhenginu:
1.    Stjórn:      Stjórn klúbbsins.
2.    Sérlög:      Sérlög klúbbsins.
3.    Stjórnarmaður:      Stjórnarmaður í klúbbnum.
4.    Félagi:      Félagi annar en heiðursfélagi í klúbbnum.
5.    RI:      Rotary International.
6.    Ár:      12 mánaða tímabil sem hefst 1. júlí.
7.    Fráfarandi forseti:     Fyrrverandi forseti sem síðast lét af störfum.

2. grein  Nafn og sambandsaðild.

Nafn klúbbsins er Rótarýklúbbur Héraðsbúa. Klúbburinn á aðild að Alþjóðasambandi Rótarý (Rotary International), Rótarýsjóðnum (Rotary foundation) íslenska rótarýumdæminu (umdæmi nr. 1360 í Alþjóðasambandi Rótarý) og öðrum samtökum rótarýhreyfingarinnar eftir ákvörðun klúbbsins.  

3. grein  Mörk klúbbsvæðis
 
Starfssvæði þessa rótarýklúbbs nær yfir  Fljótsdalshérað

4. grein  Tilgangur

Markmið Rótarýs er að örva og leggja rækt við þjónustuhugsjónina  svo að hún verði grundvöllur góðra verka og sérstaklega að glæða og efla:
1.    Viðkynningu svo að hún veiti tækifæri til þjónustu.
2.    Háleitar siðgæðiskröfur í athöfnum og embættisfærslu, viðurkenningu á gildi allra nytsamra starfa, virðingu hvers félaga fyrir starfi sínu sem tækifæri til að vinna samfélaginu gagn.
3.    Fylgi við þjónustuhugsjónina í einkalífi, atvinnu og  samfélagsstörfum hvers félaga.
4.    Eflingu skilnings, góðvildar og friðar þjóða í millum með heimsfélagsskap framkvæmda- og embættismanna er þjónustuhugsjónin tengir saman.

5. grein  Þjónustuleiðirnar fimm

Hinar fimm þjónustuleiðir Rótarý marka hugsjónalega og verklega umgjörð starfs í þessum klúbbi.
1.    Klúbbþjónustan, fyrsta þjónustuleiðin, tekur til þeirra verka sem félagi innir af hendi til þess að klúbbstarfið verði sem árangursríkast.
2.    Starfsgreinaþjónustan, önnur þjónustuleiðin, hefur það að markmiði að stuðla að ríku siðgæði í viðskiptum og störfum, viðurkenningu á gildi allra nytsamra  starfa, og rækt við þjónustuhugsjónina í öllum athöfnum. Hlutverk félaga er að breyta í anda Rótarý bæði í einkalífi og starfi.
3.    Samfélagsþjónusta, þriðja þjónustuleiðin, vísar til þess sem félagar leggja af mörkum, stundum í samstarfi við aðra aðila, til að auka lífsgæði þeirra er eiga heima á klúbbsvæðinu eða í sveitarfélaginu.
4.    Alþjóðleg þjónusta, fjórða þjónustuleiðin, nær til þeirra verkefna sem félagar vinna að til að efla skilning milli þjóða, góðvild og frið með því að auka kynni við fólk frá öðrum löndum, menningu þess, siðvenjur, árangur, væntingar og vanda með lestri og tjáskiptum og með þátttöku í starfi og verkefnum klúbbsins, sem ætluð eru til að liðsinna íbúum í öðrum löndum.
5.    Ungmennaþjónustan, fimmta þjónustuleiðin, staðfestir þær jákvæðu breytingar sem leiða af þátttöku unglinga og ungs fullorðins fólks í leiðtogastarfi og þróun þess, þátttöku þeirra í þjónustuverkefnum heima- og að heiman, og í gagnkvæmum skiptaverkefnum sem stuðla að og styrkja frið í heiminum og menningarlegan skilning.

6. grein  Fundir

1.    Reglulegir fundir
a)     Dagur og fundartími:  Klúbburinn skal halda reglulegan fund einu sinni í viku hverri á þeim degi og tíma sem fyrir er mælt í sérlögum hans.
b)    Breyting á fundi:  Þegar brýna nauðsyn ber til getur klúbbstjórn ákveðið fund á öðrum   degi en venjulega, þó þannig að hann sé á því tímabili sem hefst daginn eftir síðasta reglulegan fundardag á undan og lýkur daginn fyrir næsta reglulegan fund.. Einnig getur stjórn breytt um fundarstað og fundartíma ef þörf kref¬ur.
c)    Niðurfelling fundar:  Þegar reglulegan fundardag ber upp á lögboðinn eða almennt viðurkenndan hátíðisdag, ef félagi í klúbbnum fellur frá, drepsóttir geisa eða hamfarir ríða yfir allt byggðarlagið, ellegar óeirðir á svæðinu kunna að stofna lífi félaga í hættu,  getur klúbbstjórn fellt niður reglulegan fund.
    Stjórnin má ekki á eigin spýtur fella niður meira en  fjóra reglulega fundi á rótarýárinu af öðrum ástæðum en hér hafa verið taldar og aldrei fleiri en þrjá í röð.

2.    Kjörfundur
Árlegt stjórnarkjör í klúbbnum skal fara fram á kjörfundi ekki síðar en 31. desember, svo sem mælt er fyrir í sérlögum klúbbsins.

7. grein  Félagsaðild

1.    Almenn skilyrð.
    Félagi skal vera fulltíða einstaklingur, vammlaus, vel metinn í starfi og virtur af athöfnum sínum.

2.    Félagar
Í klúbbnum eru  tvenns konar félagar,  virkir félagar og heiðursfélagar.

3.    Aðild
Velja má einstakling, búinn þeim verðleikum sem nefndir eru í 6. grein, lið 2 í stofnskrá RI, sem virkan félaga í klúbbnum.

4.    Flutningur milli klúbba eða innganga fyrrverandi rótarýfélaga
a)    Hugsanlegur félagi: Félagi getur stungið upp á sem virkum félaga einstaklingi, sem hyggst flytjast úr öðrum klúbbi eða er fyrrverandi rótarýfélagi, ef viðkomandi hyggst hætta eða hefur hætt aðild sinni að fyrri klúbbi þar sem hann starfar ekki lengur í starfsgrein sinni á svæði þess klúbbs eða nágrenni hans. Einnig getur klúbburinn, sem einstaklingur hefur verið virkur félagi í, stungið upp á honum sem félaga samkvæmt þessum lið. Starfsgrein flytjandi eða fyrrverandi félaga getur ekki komið í veg fyrir val hans í klúbbinn, þó að það raski tímabundið reglum um takmörkun fjölda í starfsgreininni. Hugsanlegir félagar í klúbbi þessum, sem eru jafnframt í eða fyrrverandi félagar í öðrum klúbbi og eru skuldugir við þann klúbb, geta eigi orðið félagar í klúbbnum.  Klúbbnum er heimilt að fara fram á að hugsanlegur félagi leggi fram skriflega staðfestingu að hann/hún sé skuldlaus við hinn klúbbinn.  Innganga núverandi eða fyrrverandi rótarýfélaga, sem virkur félagi skv. málsgrein þessari, skal vera háð því að lögð sé fram staðfesting frá stjórn fyrri klúbbs um aðild viðkomandi að þeim klúbbi.
b)    Núverandi eða fyrrverandi rótarýfélagar: Klúbburinn skal leggja fram yfirlýsingu varðandi það hvort núverandi eða fyrrverandi félagi í honum sé skuldlaus við klúbbinn ef ósk um slíkt kemur frá öðrum klúbbi vegna hugsanlegrar inngöngu hans í þann klúbb.

5.    Tvöföld félagsaðild
    Enginn getur verið virkur félagi í þessum klúbbi og öðrum rótarýklúbbi samtímis.
    Enginn getur á  sama tíma verið virkur félagi og heiðursfélagi í þessum klúbbi.
    Enginn félagi getur samtímis verið virkur félagi í þessum klúbbi og í Rotaractklúbbi.

6.    Heiðursfélagar
a) Hæfi heiðursfélaga:  Klúbburinn getur kjörið sem heiðursfélaga hvern þann einstakling sem sýnt hefur frábæra atorku í útbreiðslu hugsjóna Rótarýs svo og þá sem kalla má vini Rótarýs vegna stöðugs stuðnings við málefni þess. Stjórnin ákveður hversu langan tíma slík félagsaðild gildir. Einstaklingur getur verið heiðursfélaga í fleiri en einum klúbbi.
b)    Réttindi:  Heiðursfélagi greiðir ekki inntökugjald né árgjöld, hefur ekki atkvæðisrétt, verður ekki kosinn til neinnar stöðu í klúbbnum, er ekki fulltrúi neinnar starfsgreinar en á rétt á að sækja alla fundi og njóta alls þess sem klúbburinn hefur að bjóða. Heiðursfélagi þessa klúbbs nýtur engra réttinda né fyrirgreiðslu í neinum öðrum klúbbi, að öðru leyti en því að honum er heimilt að sækja fundi annarra klúbba án þess að vera gestur rótarýfélaga.

8.    Opinber störf
Einstaklingur sem er kosinn eða skipaður til opinberra starfa um ákveðið tímabil er ekki hlutgengur virkur félagi sem fulltrúi þeirrar starfsgreinar. Þetta ákvæði tekur þó ekki til einstaklinga sem gegna stöðum í skólum, háskólum eða kennslustofnunum yfirleitt eða starfa í dómskerfinu. Félagi sem kosinn er eða skipaður til opinberra starfa um tiltekinn tíma verður áfram fulltrúi þeirrar starfsgreinar sem var síðasti starfsvettvangur hans á undan kjöri hans eða skipun meðan á því stendur.

9.    Starfsfólk RI
    Klúbburinn getur haft að félaga hvaða starfsmann RI sem er meðan hann gegnir því starfi.

8. Grein  Starfsgreinar

1.    Almenn ákvæði
a)    Aðalstarf:  Hverjum félaga skal valin starfsgrein í samræmi við atvinnurekstur hans, stöðu eða stétt, eða tegund samfélagsþjónustu hans. Sú starfsgrein sem valin er skal vera lýsandi fyrir það starf sem hann vinnur að mestu leyti við hvort sem það er í fyrirtæki, stofnun eða embættisrekstri eða er lýsandi fyrir eðli samfélagsþjónustu félagans.
b)    Leiðrétting eða breyting:  Sé tilefni til getur stjórnin leiðrétt eða breytt starfsgrein félaga. Félaga skal jafnan tilkynnt um slíka endurskoðun og gefið tækifæri að tjá sig um hana.

2.    Takmarkanir
Ekki skal velja sem virkan félaga fulltrúa úr starfsgrein, hafi klúbburinn fleiri en fimm félaga úr þeirri starfsgrein, nema því aðeins að í klúbbnum séu fleiri en 50 félagar.
Þá má velja félaga í hana svo fremi að fjöldi þeirra fari ekki yfir 10% af fjölda félaga í klúbbnum. Ekki skal telja félaga sem látið hafa af störfum með í heildarfjölda í starfsgrein.
Starfsgrein flytjandi félaga, fyrrverandi félaga eða styrkþega rótarýsjóðsins skv. skilgreiningu aðalstjórnar RI, getur ekki komið í veg fyrir val hans í klúbbinn, þó að það raski tímabundið reglu um fjölda í starfsgreininni. Breyti maður um starfsgrein getur hann áfram verið félagi í nýrri starfsgrein þrátt fyrir þessar takmarkanir.


9. Grein  Fundarsókn

1.    Almenn ákvæði
Sérhver félagi skal sækja reglulega fundi í klúbbnum. Það telst fundarsókn ef rótarýfélagi er viðstaddur 60% af fundartímanum eða er óvænt kallaður af fundi af ástæðum sem stjórnin tekur gildar eða bætir upp fjarveru sína með einhverjum eftirtöldum hætti:

a)    Fjórtán daga tímamörkin:  Ef félagi á fjórtán (14) daga tímabili fyrir og eftir fundinn:
1)    sækir fund í öðrum klúbbi eða reynsluklúbbi, a.m.k. 50% af fundartímanum,               eða
2)    sækir fund hjá Rotaract- eða Interactklúbbi, Rotary Community Corps (RCC) eða Rotary Fellowship  eða slíkum reynsluklúbbum                                                                          eða
3)    sækir allsherjarþing RI, löggjafarþing, alþjóðlegt formót, Rotary Institute fyrir fyrrverandi, núverandi eða viðtakandi embættismenn RI, eða sérhvern fund sem haldinn er með samþykki stjórnar RI eða forseta RI f.h. stjórnar RI, fjölsvæðaþing Rótarý, nefndarfund RI, umdæmisþing Rótarý, umdæmisformót Rótarý, sérhvern umdæmisfund, sem haldinn er skv. fyrirmælum stjórnar RI, sérhvern fund umdæmisnefndar sem haldinn er skv. fyrirmælum umdæmisstjóra eða þéttbýlisfundi (intercity meetings) rótarýklúbba           eða
4)    mætir á réttum tíma á fundarstað annars klúbbs þó að sá klúbbur hafi fellt niður fund   eða
5)    er viðstaddur og tekur þátt í klúbbþjónustuverkefni eða samfélagsviðburði sem klúbburinn stendur að eða fundi sem stjórnin hefur viðurkennt                                                           eða
6)  sækir stjórnarfund eða, ef stjórn heimilar, fund í þjónustunefnd klúbbsins sem hann er valinn í                                                                                                                               eða
7)    tekur gegnum vefsíðu klúbbs þátt í samskiptaverkefni, sem tekur minnst 30 mínútur í senn.
Ef félagi er erlendis lengur en fjórtán daga gilda tímamörkin ekki, þannig að hann getur sótt fundi þar hvenær sem er meðan á ferð stendur og hver slík mæting skal gilda sem uppbót  fyrir hvern reglulegan fund sem hann hefur misst af vegna ferðarinnar.

b)    Vegna fjarveru á fundartíma:  Félaga má reikna fundarsókn ef hann  á fundartíma er:
1)    á ferðalagi stystu leið til eða frá samkomum samkvæmt undirlið 3 a) í þessum lagalið,   eða
2)    í erindagerðum sem sýslunarmaður, nefndarmaður RI eða stjórnarmaður RF                 eða
3)    sérstakur fulltrúi umdæmisstjóra við stofnun nýs klúbbs,                                                  eða
4)    starfsmaður RI bundinn við störf í þágu Rótarýs,                                                              eða
5)    á ferð vegna starfs að verkefni á vegum umdæmis eða RI í afskekktum landshluta þar sem engin leið er að komast á rótarýfund                                                                                  eða
6)    í viðurkenndum erindagerðum fyrir klúbbinn og getur þess vegna ekki sótt fund.

2.    Langvarandi fjarvera á fjarlægum stað
Ef félagi starfar um lengri tíma fjarri eigin klúbbsvæði og mætir í tilteknum klúbbi á því svæði þar sem hann er kemur það í stað fundarsóknar í eigin klúbbi, enda sé um það samkomulag milli hans eigin klúbbs og þess klúbbs sem hann sækir fundi hjá.
    
3.     Undanþágur frá fundarsókn.
Félagi fær undanþágu frá fundarsókn ef :
a)    ástæða fjarvistar samræmist þeim skilyrðum og öðrum aðstæðum sem stjórnin hefur viðurkennt. Stjórnin getur undanþegið félaga mætingarskyldu af ástæðum sem hún telur fullnægjandi í allt að tólf mánuði.
b)    félagi er orðinn 65 ára og ef summa af aldri og félagsaðild hans í einum eða fleiri Rótarýklúbbum er 85 ár eða meira og félaginn hefur óskað þess skriflega við ritara klúbbsins að vera undanþeginn mætingarskyldu og óskin hlotið samþykki stjórnar.

4.    Fjarvera embættismanns  RI
Félagi sem er embættismaður RI er undanþeginn mætingarskyldu.

5.    Skráning mætinga  
Ef félagi sem er undanþeginn mætingarskyldu samkvæmt undirlið 3 b) og lið 4 hér að ofan mætir á klúbbfund skal félaginn og mæting hans talin með í þeirri tölu sem notuð er til þess að reikna út mætingarhlutfall klúbbsins.

10. grein  Stjórn og nefndarmenn

1.    Stjórn
Stjórn klúbbs er í forsvari fyrir hann og valin í samræmi við ákvæði sérlaga klúbbsins.

2.    Vald
Stjórnin hefur almennt vald yfir öllum sýslunarmönnum og nefndum klúbbsins og getur skipt um menn í öllum störfum, sé fyrir því eðlileg ástæða.

3.    Ákvörðun stjórnar endanleg
Ákvörðun klúbbstjórnar er endanleg í öllum klúbbmálum en henni má vísa til klúbbfundar. Félagi, sem stjórnin hefur ákveðið að vísa úr klúbbnum, getur þó skotið málinu til klúbbfundar eða óskað gerðardóms (sbr.12. grein lið 6). Ákvörðun vísað til klúbbfundar fellur því aðeins úr gildi að tveir þriðju hlutar félaga á reglulegum fundi sem meirihluti félaga sækir séu henni mótfallnir, enda hafi ritari klúbbsins tilkynnt félögum um málavöxtu minnst fimm dögum fyrir fundinn. Afgreiðsla fundarins er endanleg.

4.    Stjórnarmenn.
Í stjórn klúbbs skulu vera forseti, fráfarandi forseti, viðtakandi forseti og einn eða fleiri varaforsetar. Ritari, gjaldkeri og stallari skulu einnig kosnir og skal í sérlögum klúbbsins tilgreint hvort þeir teljist til stjórnarmanna.


5.    Kosning stjórnar
a)  Kjörtímabil stjórnarmanna annarra en forseta:  Stjórnarmenn klúbbs skulu kosnir eins og fyrir er mælt í sérlögum klúbbsins. Að undanskildum forseta taka þeir við starfi 1. júlí næstan  á eftir kjördegi sínum og starfa þar til aðrir hafa verið kosnir í þeirra stað.

b)  Kjörtímabil forseta:  Kjósa skal forseta á þann hátt sem mælt er fyrir í sérlögum klúbbsins. Hann skal kosinn tveimur árum hið mesta og átján mánuðum hið minnsta áður en hann tekur við starfinu og gegnir skyldum tilnefnds forseta eftir kjörið.  Hann skal starfa sem verðandi forseti frá 1. júlí árið áður en hann tekur við sem forseti. Hann tekur við embætti 1. júlí í upphafi starfsárs síns og gegnir því í eitt ár eða þar til annar hefur verið kjörinn í hans stað.

c)  Hæfisskilyrði:  Allir stjórnarmenn og aðrir sýslunarmenn klúbbs skulu vera félagar í góðum metum. Verðandi forseti skal sækja námsstefnu verðandi forseta, formót og umdæmis¬þing nema hann fái undanþágu hjá verðandi umdæmisstjóra. Fái hann undanþágu ber honum að senda skilríkan fulltrúa fyrir sig sem síðan flytur honum skýrslu um við-fangsefni mótsins.  Sæki verðandi forseti ekki fræðslumót forseta og formót án þess að hafa fengið undanþágu umdæmisstjóra og sent viðurkenndan fulltrúa klúbbsins á þessar samkomur telst hann ekki hæfur að gegna starfi forseta klúbbsins. Við þessar aðstæður gegnir sitjandi forseti starfinu þar til valinn hefur verið eftirmaður sem hefur sótt fræðslumót forseta og formót eða fengið þjálfun sem verðandi umdæmisstjóri telur fullnægjandi.

11. grein  Inntökugjald og önnur gjöld

Allir félagar skulu greiða inntökugjald og árgjald svo sem fyrir er mælt í sérlögum klúbbsins. Félagi sem flyst úr öðrum klúbbi samkvæmt 7. grein lið 4 þarf ekki að greiða inntökugjald öðru sinni. Rotaractor félagi sem hefur hætt sem slíkur á síðustu 2 árum er undanþeginn greiðslu inntökugjalds.

12. Grein  Tími félagsaðildar

1.    Tími
Félagsaðild varir meðan klúbburinn starfar nema henni ljúki af einhverjum eftirgreindum ástæðum:

2.    Slit
a)  Aðildarskilyrði:  Félagsaðild að klúbbi rofnar sjálfkrafa ef félagi uppfyllir ekki lengur skilyrði til aðildar að klúbbnum með þessum undantekningum:
1)    Stjórnin getur veitt félaga sem flytur burt af klúbbsvæðinu leyfi til að vera áfram í klúbbnum og undanþágu frá fundarsókn í eitt ár hið mesta, meðan hann er að kynnast klúbbi á svæðinu, þangað sem hann hefur flutt, enda uppfylli félaginn öll önnur skilyrði fyrir aðild að klúbbnum.
2)    Stjórnin getur veitt félaga sem flytur af klúbbsvæðinu heimild til þess að vera áfram í klúbbnum, ef hann eftir sem áður uppfyllir öll skilyrði fyrir aðild að klúbbnum.

b)  Endurnýjun félagsaðildar:  Hafi félagi hætt í klúbbnum af ástæðum greindum í lið a í þessum kafla og fram til þess tíma verið í góðu áliti innan klúbbsins getur hann sótt um inngöngu að nýju fyrir sömu eða aðra starfsgrein. Ekki skal greiða inntökugjald að nýju.

c)  Lok aðildar heiðursfélaga:  Kjör heiðursfélaga fellur sjálfkrafa úr gildi að loknu því tímabili sem stjórnin hefur ákveðið að það gildi. Stjórnin getur samt sem áður framlengt það til lengri tíma. Stjórnin getur hvenær sem er afturkallað kjör heiðursfélaga.  

3.    Slit vegna vanskila á gjöldum
a)   Félagi sem ekki greiðir gjöld sín innan þrjátíu  daga frá gjalddaga skal skriflega áminntur af ritara um   greiðslu.
Greiði hann ekki skuldina innan tíu daga frá áminningu má strika hann út af félagaskrá, nema stjórnin ákveði annað.
b)  Hann getur orðið félagi að nýju, ef klúbbstjórn ákveður svo, að beiðni hans og hann hefur greitt gjöld sín, enda sé starfsgrein hans ófyllt. Þó getur fyrrum félagi ekki orðið virkur félagi að nýju stangist starfsgrein hans á við 8. grein lið 2.

4.    Slit vegna vanrækslu á fundarsókn
a)    Mætingarhlutfall:  Félagi verður að:
1)    Sækja eða bæta sér upp a.m.k. 50% reglulegra funda á fyrri og síðari helmingi rótarýársins, hvorum fyrir sig.
2)    Sækja a.m.k. 30% reglulegra funda í eigin klúbbi á fyrri og  síðari helmingi rótarýársins. (aðstoðarumdæmisstjórar samkvæmt skilgreiningu aðalstjórnar RI eru undanþegnir þessari skyldu).
Sé fundarsókn ekki eins og krafist er, er heimilt að fella félagsaðild úr gildi nema stjórnin taki ástæður fyrir fjarvistum góðar og gildar.
b)    Samfelld fjarvera:  Sæki félagi ekki fjóra reglulega fundi í röð og bæti þá ekki upp, án þess að stjórnin hafi heimilað það af fullnægjandi ástæðum eða ákvæði 9. greinar 3. eða 4. liðar eigi við, skal stjórn tilkynna honum að líta megi á fjarveruna sem beiðni um úrsögn úr klúbbnum. Að svo búnu getur stjórnin samþykkt með meirihluta atkvæða að fella hann út af  félagaskrá.

5.    Slit af öðrum ástæðum
a) Gildar ástæður:  Klúbbstjórn getur fellt út af félagaskrá einstakling sem ekki uppfyllir lengur kröfur um verðleika félaga eða af öðrum gildum ástæðum. Samþykktin skal gerð með minnst tveimur þriðju hlutum atkvæða á stjórnarfundi sem sérstaklega er haldinn um þetta mál. Á þessum fundi skal hafa að leiðarljósi 1. lið 7. greinar, fjórprófið og þann sterka siðferðisgrundvöll sem einkenna ber sérhvern rótarýfélaga.
b) Tilkynning:  Áður en gripið er til aðgerða  samkvæmt lið a) hér að framan skal þeim sem í hlut á tilkynnt um málið með minnst tíu daga fyrirvara og gefinn kostur á að skila stjórninni skriflegri greinargerð. Einnig á hann rétt á að koma fyrir stjórnina til að standa fyrir máli sínu. Þetta skal honum tilkynnt bréflega í ábyrgðarbréfi eða boðsendingu til síðasta heimilisfangs.
c) Ráðstöfun starfsgreinar:  Hafi félagi verið felldur út af félagaskrá, eins og lýst hefur verið í þessum lið, skal ekki samþykkja nýjan félaga í starfsgrein hans fyrr en kærufresti er lokið, klúbbfundur hefur fjallað um málið eða gerðardómur lokið störfum. Þetta ákvæði gildir þó ekki ef fjöldi virkra félaga í starfsgreininni er innan marka enda þótt ákvörðun stjórnarinnar um slit verði hnekkt.

6.    Réttur til áfrýjunar, sáttaumleitana eða gerðardóms varðandi slit
a) Tilkynning:  Hafi klúbbstjórn ákveðið að fella félaga út af félagaskrá skal ritari innan sjö daga frá þeirri ákvörðun gera honum grein fyrir henni bréflega. Hann getur innan fjórtán daga tilkynnt ritara bréflega að hann ætli að gera eitt af þrennu; vísa máli sínu til klúbbfundar, æskja sáttafundar eða leggja það í gerð eins og fyrir er mælt í 16. grein.
b) Áfrýjun til klúbbfundar:  Áfrýi hann máli sínu til klúbbfundar skal stjórnin ákveða á hvaða reglulegum fundi málið skuli tekið fyrir og boða til hans innan tuttugu og eins dags frá móttöku áfrýjunar.
Sá klúbbfundur skal boðaður bréflega öllum félögum með minnst fimm daga fyrirvara og grein gerð fyrir fundarefni. Hann skal vera lokaður öðrum en klúbbfélögum.
c) Sáttafundur eða gerðardómur:  Sé máli vísað til sáttafundar eða í gerðardóm skal með það farið eins og fyrir  er mælt  í 16. grein laga þessara.
d) Áfrýjun:  Sé máli áfrýjað til klúbbfundar skal ákvörðun hans vera endanleg og bindandi fyrir alla er hlut eiga að máli og er ekki hægt að leggja hana í gerðardóm.
e) Ákvörðun gerðardómenda eða oddamanns:  Sé óskað eftir gerðardómi skal ákvörðun dómenda eða oddamanns ef þeir eru ekki einhuga vera endanleg og bindandi fyrir alla aðila og  verður ekki áfrýjað.
f) Árangurslaus sáttafundur:  Beri sáttafundur ekki árangur, getur félagi skotið máli til klúbbfundar eða gerðardóms svo sem tiltekið er í lið a).

7.    Ákvörðun stjórnar endanleg  
Ákvörðun klúbbstjórnar í máli er endanleg,  hafi því ekki verið vísað til klúbbfundar eða gerðardóms.

8.    Úrsögn
Úrsögn félaga úr klúbbnum skal vera skrifleg og send til forseta eða ritara. Klúbbstjórn ber að samþykkja hana, enda sé félagi skuldlaus.

9.    Missir eigna og réttinda
Einstaklingur, sem ekki er lengur félagi í rótarýklúbbnum, glatar öllum rétti til sjóða og annarra eigna klúbbsins hafi viðkomandi félagi öðlast einhvern slíkan eignarrétt við inngöngu í klúbbinn skv. landslögum

10.    Tímabundin slit félagsaðildar
Ef það er álit stjórnar, án tillits til annarra ákvæða  grundvallarlaganna ,að:
a)    fram hafi komið trúverðugar ásakanir um að félagi hafi neitað eða vanrækt að fara að grundvallarlögunum, eða hafi gerst sekur um hegðun sem félaga er ekki samboðin eða sett blett á orðstír klúbbsins; og
b)    varði þessar ásakanir, reynist þær á rökum reistar, slit félagsaðildar viðkomandi félaga; og
c)    ekki sé talið æskilegt að grípa til aðgerða varðandi félagsaðild hans meðan beðið er niðurstöðu í máli eða atvikum sem stjórnin telur að þurfi að liggja fyrir áður  en hún afgreiðir málið; og
d)    með hagsmuni klúbbsins að leiðarljósi  sem og til að komast hjá atkvæðagreiðslu um félagsaðild hans eða hennar, skuli félagsaðild viðkomandi félaga slitið tímabundið og hann útilokaður frá fundum og öðru starfi í klúbbnum sem og frá embættum og stöðum sem hann gegnir fyrir klúbbinn. Félaginn verður undanþeginn mætingarskyldu á grundvelli þessa ákvæðis;
getur stjórnin, með atkvæðum a.m.k. 2/3 hluta stjórnarmanna, slitið aðild félagans um tiltekið tímaskeið og á þeim forsendum sem stjórnin ákveður, en þó ekki lengur en telja má sanngjarnt miðað við aðstæður allar.

13. grein  Samfélags-, þjóðmála- og alþjóðamálefni

1.    Sannir þegnar
Félagar þessa klúbbs bera fyrir brjósti velferðarmál samfélags, þjóðar og heimsins alls. Á klúbbfundum eru rædd á heiðarlegan og upplýsandi hátt málefni sem til heilla horfa, félögum til fróðleiks, skilnings og skoðanamyndunar. Hins vegar tekur klúbburinn ekki afstöðu til dægurmála eða óútkljáðra deilumála.

2.    Engin meðmæli
Klúbburinn styður ekki né mælir með neinum frambjóðanda til opinberra starfa og ræðir ekki á fundum sínum verðleika eða ávirðingar slíkra frambjóðenda.

3.    Engin pólitísk afstaða
a) Ályktanir og samþykktir:  Klúbburinn gerir ekki ályktanir um eða dreifir samþykktum um  málefni á alþjóðavettvangi né lætur til sín taka pólitískar stefnur í alþjóðamálum.
b) Áskoranir:  Klúbburinn skorar ekki á aðra klúbba, þjóðir eða ríkisstjórnir að taka ákveðna afstöðu í pólitískum alþjóðamálefnum né heldur dreifir hann bréfum, ræðum eða ritgerðum af þeim toga.

4.    Upphaf Rótarýs
Afmælisvika Rótarýs (afmælisdagurinn er 23. febrúar) nefnist friðar- og vináttuvika. Í þeirri viku leggur klúbburinn sig fram um að kynna markmið Rótarýs, minna á afrek hreyfingarinnar og vekja sérstaklega athygli á hugsjón hennar um frið, skilning og góðvilja heima fyrir og um veröld alla.


14. grein  Tímarit Rótarýs

1.    Skylduáskrift
Klúbburinn leggur þá skyldu á herðar félögum sínum að þeir kaupi tímarit RI eða viðurkennt svæðistímarit hreyfingarinnar hafi klúbburinn ekki verið undanþeginn þeirri kvöð samkvæmt ákvörðun stjórnar RI. Tveimur rótarýfélögum með sameiginlegt heimilisfang er heimil ein sameiginleg áskrift að tímariti RI. Félagi greiðir áskrift að ritinu frá upphafi þess sex mánaða tímabils er hann gekk í klúbbinn og  til loka þess sex mánaða tímabils er hann hvarf úr klúbbnum.

2.    Innheimta áskriftargjalds
Áskriftargjald tímaritsins skal klúbburinn innheimta af félögum hálfsárslega fyrirfram og skila því til aðalskrifstofu  RI eða þeirrar skrifstofu sem sér um útgáfu viðkomandi svæðisrits.

15. grein  Viðurkenning á markmiðum og lögum Rótarýs

Þegar félagi gengur í klúbbinn og greiðir inntökugjald viðurkennir hann um leið að vera samþykkur markmiðum Rótarýs og fellst á að fylgja þeim og vera bundinn af stofnskrá Rótarýs og sérlögum klúbbsins. Með því öðlast hann þau réttindi sem klúbburinn veitir. Sérhverjum rótarýfélaga ber að fylgja  þessum lögum hvort sem hann hefur fengið þau í hendur eða ei.

16. grein  Sáttafundir og gerðardómur

1.    Deilur
Komi upp missætti í klúbbnum, af öðrum ástæðum en ákvörðun stjórnar, milli félaga eða fyrrum félaga og klúbbsins, sýslunarmanns eða stjórnar, af hvaða ástæðu sem er og málið leysist ekki eftir þeim leiðum sem þegar er gert ráð fyrir, skal eftir beiðni til ritara frá einhverjum deiluaðila, skera úr deilumálinu með sáttafundi eða gerðardómi.

2.    Tímasetning sáttafundar og gerðardóms
Ef þörf er sáttafundar eða gerðardóms skal stjórn klúbbsins ákveða tíma fyrir slíkt í samráði við aðila máls og skal hann haldinn innan tuttugu og eins dags frá því beiðni um það hefur  borist.
 
3.    Sáttaumleitanir
Framkvæmd sáttafundar skal vera í samræmi við viðurkenndar kröfur hér á landi,  hagað eftir leiðbeiningum viðurkenndra sérhæfðra aðila á þessu sviði eða fylgja í því efni skráðum reglum sem stjórn RI eða Rótarýsjóðsins hafa látið í té. Eingöngu má velja rótarýfélaga til sáttastarfa. Klúbburinn getur beðið umdæmisstjóra eða fulltrúa hans að tilnefna sáttasemjara sem er rótarýfélagi og hefur viðurkennda þekkingu og reynslu á því sviði.
a) Niðurstaða sáttafundar:  Samkomulag deiluaðila og niðurstaða sáttafundar skal skráð og fá báðir aðilar og sáttasemjari eintak, ennfremur stjórn klúbbsins og skal ritari varðveita það.
Úrdráttur samkomulagsins skal gerður til upplýsinga fyrir aðra klúbbfélaga.
Hvor deiluaðili fyrir sig getur óskað eftir að forseti eða ritari boði til frekari viðræðna hafi annarhvor vikið verulega frá gerðu samkomulagi.
b) Árangurslausar sáttaumleitanir:  Beri sáttaumleitanir ekki árangur, geta deiluaðilar hvor um sig óskað gerðardóms svo sem tilgreint er í lið 1 í þessari grein.

4.    Gerðardómur
Sé óskað gerðardóms skal hvor aðili tilnefna mann í dóminn og þeir koma sér saman um
oddamann. Aðeins rótarýfélagar geta gegnt störfum í slíkum gerðardómi.

5.    Niðurstöður gerðardóms eða oddamanns
Niðurstaða gerðardóms eða oddamanns, náist ekki samkomulag, er endanleg og bindandi fyrir alla aðila og henni er ekki hægt að áfrýja

17. grein  Sérlög klúbbsins

Klúbburinn setur sín eigin sérlög. Þau mega ekki vera í ósamræmi við stofnskrá eða sérlög RI, reglur umdæmisins né þessi grundvallarlög, en bæta má við sérákvæðum um stjórnun klúbbsins, ef henta þykir. Sérlögunum má breyta samkvæmt ákvæðum þeirra.

18.  grein  Túlkun

Þegar í lögum þessum eru notuð orðin "póstur", "póstleggja" og "atkvæðagreiðsla í pósti" er einnig átt við notkun tölvupósts (e-mail) og netsamskipta (internet) til þess að draga úr kostnaði og auka svörun.

19. grein  Lagabreytingar

1.    Hvernig standa á að lagabreytingum
Að öðru leyti en því sem tilgreint er í lið 2 í þessari grein verður þessum grundvallarlögum klúbba aðeins breytt af löggjafarþingi RI á sama hátt og ákveðið er  í sérlögum RI um breytingar á þeim lögum.
2.    Breyting á 2. grein og 3. grein.
2. grein þessara laga (um nafn) og 3. grein (um svæðistakmörk) má breyta á almennum klúbbfundi þar sem meirihluti félaga er viðstaddur og gildir samþykkt tveggja þriðju hluta félaga er greiða atkvæði. Tillagan skal áður kynnt öllum félögum og umdæmisstjóra með bréfi minnst tíu (10) dögum fyrir fundinn. Einnig skal breytingin kynnt aðalstjórn RI og hlýtur ekki staðfestingu fyrr en hún hefur samþykkt hana. Umdæmisstjóri  getur látið í ljós álit sitt  við aðalstjórn RI um breytingartillöguna.

Þannig samþykkt á fundi Rótarýklúbbs Héraðsbúa þann 6. desember 2011.

Grundvallarlög þessi gilda frá 1. júlí 2010