Fréttir

8.9.2008

Fundur 8. september

Gestur okkar á fundinum í dag verður María Ellingsen leikkona og leikstjóri og ætlar hún að segja frá því hvernig hún og Charlotta Böving söfnuðu sögum kvenna og sköpuðu úr þeim leikhúsverk sem fjallar um að vera mamma og eiga mömmu. Verkið hlaut titilinn Mammamamma og hefur verið sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu undanfarið.