Fréttir

28.6.2016

Sumarfrí klúbbsins

Fundir falla niður í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg mánudagana 4., 11., 18. og 25. júlí 2016 vegna sumarfrís klúbbsins. Mánudagurinn 1. ágúst er frídagur verslunarmanna og því enginn fundur þann dag. Næsti fundur klúbbsins verður mánudaginn 8. ágúst 2016 á hefðbundnum fundarstað klúbbsins á veitingahúsinu Nauthóli við Nauthólsvík.