Fréttir

4.2.2014

Sumarferð Rótarýklúbbsins Reykjavík-Miðborg

Árleg sumarferð Rótarýklúbbsins Reykjavík-Miðborg verður dagana 26.-29. júní 2014. Ferðin hefst með kvöldverði fimmtudaginn 26. júní á gististað hópsins að Geirlandi í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur. Daginn eftir verður farið um Landbrot og gengið um Kirkjubæjarklaustur síðdegis. Laugardaginn 28. júní verður ekið að Lakagígum og gengið um svæðið stóran hluta af deginum. Að loknum morgunverði á sunnudeginum er ekið heimleiðis um Hjólaskjól í Skaftártungum. Klúbbfélagar sem áhuga hafa á ferðinni eru beðnir um að senda tölvupóst sem fyrst til Margrétar Guðmundsdóttur, formanns ferðanefndar klúbbsins (margret@icepharma.is).