Fréttir

13.1.2014

Stjórnarkjör í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg

Kjörin hefur verið stjórn í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg sem taka mun við þegar næsta starfsár hefst 1. júlí 2014. Stjórnin verður þannig skipuð: Jón Bergmundsson forseti, Rannveig Gunnarsdóttir viðtakandi forseti, Guðrún Ragnarsdóttir ritari, Pétur Magnússon gjaldkeri, Jóhanna Gunnlaugsdóttir stallari og Kristín Guðmundsdóttir fráfarandi forseti. Jón var stallari starfsárið 2009-2010, Rannveig ritari 2004-2005 og Jóhanna ritari 2000-2001.