Fréttir

15.1.2014

Rotary Norden á rafrænu formi

Norrænu rótarýumdæmin hafa gefið út mánaðarritið Rotary Norden siðan 1936. Blaðið kemur að jafnaði út sjö sinnum á ári. Nýlega var rótarýfélögum í fyrsta sinn boðið upp á að fá blaðið á rafrænu formi í stað prentaðrar útgáfu. Í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg var ákveðið að allir klúbbfélagar fengju blaðið á rafrænu formi nema þeir óskuðu sérstaklega eftir því að fá prentuðu útgáfuna. Fljótlega munu klúbbfélagar fá sérstakt snjallforrit (app) sem þeir geta notað til að nálgast blaðið. Fram að því má nálgast blaðið með því að smella hér.