Fréttir

6.12.2013

Jólafundur

Jólin koma

Jólafundur Rótarýklúbbsins Reykjavík-Miðborg verður haldinn mánudaginn 9. desember 2013 á fundarstað klúbbsins í veitingahúsinu Nauthóli. Fundurinn hefst kl. 18.30. Á fundinum mun sr. Anna Sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur og fyrrum klúbbfélagi flytja hugvekju. Þá munu Daria Wittwer, skiptinemi klúbbsins frá Sviss, og Mateo Vintimilla frá Ekvador, sem einnig er rótarýskiptinemi á Íslandi, leika á hljóðfæri. Loks mun Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og félagi í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Austurbær, fjalla um bók sína Ekki meir. Fundurinn er opinn mökum og öðrum gestum. Þátttaka skal tilkynnt fyrirfram með tölvupósti til ritara klúbbsins Thomasar Möller Thomas@rymi.is